142. löggjafarþing — 21. fundur, 3. júlí 2013.
þingsköp Alþingis.
30. mál
Virðulegi forseti. Ég geri athugasemd við það að okkur hv. þingmönnum sé gert að fylgja reglum um að ávarpa þingmenn sem háttvirta og svo með fullu nafni eða eftir sæti þeirra í viðkomandi kjördæmi — ef við ætlum að hafa þessar reglur verður virðulegur forseti að gera athugasemdir ef þeim er ekki fylgt. Það þýðir ekki að hafa hér reglur fyrir suma en ekki fyrir aðra.