142. löggjafarþing — 21. fundur,  3. júlí 2013.

þingsköp Alþingis.

30. mál
[20:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt að halda því til haga að í þeim viðræðum sem hafa átt sér stað undanfarna daga kom skýrt fram frá formanni Vinstri grænna, hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur, að gera þyrfti ráð fyrir því að forsætisnefnd gæfi sérstakt svigrúm til umræðu í þinginu fyrir fjárlögin af þessu tilefni. Því var vel tekið. Mér finnst sjálfsagt að forsætisnefnd fái þau skilaboð úr þessari umræðu að þeim sjónarmiðum hafi verið hreyft, að vegna þess að frumvarpið kemur síðar fram en ella hefði orðið þurfi eftir atvikum eitthvað að skipuleggja umræðu um fjárlög sérstaklega með tillit til þess, það finnst mér sjálfsagt.

Ég vil engu að síður ítreka það sem ég sagði áðan. Ég tel að með betra verklagi hér í þinginu, breyttum vinnubrögðum og eftir atvikum með breytingum á lögum um fjárreiður ríkisins sem líka ganga undir heitinu lög um opinber fjármál, eða það er vinnuheiti á málinu, þá held ég að við getum dreift vinnunni mun meira yfir árið og þannig gert vorþingið virkara í ákvarðanatöku sem undir venjulegum kringumstæðum í dag fer öll fram á haustin Með því að dreifa álagi í fjárlaganefnd yfir árið allt, og taka á fyrri hluta ársins stórar ákvarðanir sem hafa áhrif á fjárlagagerðina, er hægt að koma miklu betra skipulagi á umfjöllun um fjárlög í þinginu og betra skipulagi sem mun skila ekki bara betra verklagi heldur nákvæmari fjárlögum og án vafa betra aðhaldi með framkvæmd þeirra.