störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag og um helgina minnast Vestmannaeyingar þess að 40 ár eru liðin frá eldum á Heimaey. 23. janúar gleymist þeim seint sem áttu heima í Vestmannaeyjum. Ég var nýorðinn 17 ára gamall þann dag og sú nótt líður mér seint úr minni.
Það líður okkur ekki heldur úr minni þegar forsætisráðherra þjóðarinnar, Ólafur Jóhannesson, sagði að Vestmannaeyjar skyldu rísa, þau orð eru okkur Vestmannaeyingum ofarlega í huga og það þakklæti sem við höfum vonandi endurgoldið þjóðinni með framlögum okkar og stöðu. Það lýsti því vel hvað Íslendingar stóðu vel saman þegar við flykktumst hingað til Reykjavíkur, höfuðborgarinnar, og síðan um allt land, hversu vel var tekið á móti okkur. Við erum ævarandi þakklát fyrir það. Við erum líka ævarandi þakklát fyrir þá mörgu nýju íbúa sem fluttust til Eyja eftir gosið og gerðu mannlífið í Vestmannaeyjum aftur svo skemmtilegt og gott eins og það hefur alltaf verið.
Í gosinu fóru 400 hús undir hraun þannig að víða var slegið mikið skarð í fjölskyldur og líf fólksins. Ég held að á þessum tímamótum ættum við að skoða hvort einhvern tímann þyrfti ekki, og það fljótlega, að skoða þau félagslegu áhrif sem gosið hafði á marga. Ég hygg að það hafi aldrei verið gert. Ég þekki mörg dæmi um fólk sem þurfti að bera hörmungarnar á hnefanum í gegnum lífið, og gerir enn, og það er örugglega rannsóknarefni fyrir okkur að skoða það. Í Vestmannaeyjum er rekin blómleg byggð í dag, mikil útgerð. Þar vinna 830 manns, þar eru útflutningsverðmæti um 50 milljarðar á ári í sjávarútvegi og við borgum skatta til þjóðarinnar eins og okkur ber. Við erum ánægðir og stoltir með hvað við eigum myndarleg fyrirtæki. Það er ánægjulegt að við skulum hafa upplifað það að Íslendingar sýndu úr hverju hjarta þeirra er þegar gosið varð.