störf þingsins.
Hæstv. forseti. Hér kom upp áðan hv. þm. Elsa Lára Arnardóttir og hafði áhyggjur af því hvernig hegðun manna væri hér í þinginu og hvatti til samstöðu, samstarfs og sátta.
Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni um þau markmið, en það kom mér á óvart að þessi ræða skyldi ekki hafa verið flutt í þingflokksherbergi Framsóknarflokksins. (Gripið fram í.) Það er þar sem hún á heima ef miðað er við hvernig hlutirnir hafa gengið fyrir sig á sumarþinginu. Við höfum mátt sæta ræðum, m.a. frá hæstv. forsætisráðherra, þar sem hann talar niður til stjórnarandstöðunnar. Ég var tilneyddur að fara í harkalegt andsvar og raunar ræðu, þar sem ég hafði ætlað að vera búinn að ljúka máli mínu, einfaldlega vegna þess hvernig framgangurinn var.
Hvað er það sem veldur því að harðar deilur hafa orðið um mál? Það er framsetningin á málinu, hvað verið er að setja fram. Það er forgangsröðunin í samfélaginu, það er verið að kollvarpa samfélaginu. Það er verið að breyta í gömlu tímana. Og eruð þið hissa þótt hart sé tekist á þegar við fáum skýrslu um Íbúðalánasjóð og sjáum hvernig Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa hegðað sér á liðnum árum — og svo sjáum við öll sömu einkennin aftur. Eigum við að sitja hér eins og prúðar dúkkur og tala ekki um þetta? Nei, ég biðst undan því.
Ég biðst líka undan því að það sé ekki málefnalegt að taka á þeirri umræðu og leita sátta og niðurstöðu. Þar skal ég verða fyrstur til enda talaði ég um það hér, þegar ég kom í þingið og hef gert öll undanfarin ár, að við eigum að reyna að ræða málefnalega um málin og leita lausna. Það er tilgangurinn.
En mér hefur algjörlega blöskrað, ég notaði það hugtak hér vitandi það að við höfum öll þekkt hugtakið valdefling sem er um að styrkja stöðu fólks, bera virðingu fyrir því, tryggja því að það geti lifað eðlilegu lífi í eðlilegu samfélagi.
Við höfum orðið vitni að því á þessu þingi, á þessu sumarþingi, að hér er ekki verið að reyna að auka valdeflingu, hv. þm. Elsa Lára Arnardóttir, það er valdbeiting í gangi af hálfu stjórnarmeirihlutans.