142. löggjafarþing — 23. fundur,  4. júlí 2013.

þingsköp Alþingis.

30. mál
[19:31]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Brynjar Níelsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu, nefndaráliti 1. minni hluta um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fjallað um málið en með því er lagt til að næsta löggjafarþing, 143. þing, komi saman 1. október. Í 35. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um að reglulegt Alþingi komi saman þann dag en jafnframt að samkomudegi þingsins megi breyta með lögum. Slík breyting var gerð á þingsköpum Alþingis með lögum nr. 84/2011 og samkomudagur Alþingis ákveðinn annar þriðjudagur í september ár hvert. Fyrsta þing samkvæmt hinni nýju reglu var 141. þing sem var sett 11. september 2012.

Samkvæmt 35. gr. stjórnarskrárinnar skal löggjafarþing standa „til jafnlengdar næsta árs“. Verði frumvarpið óbreytt að lögum ætti 143. löggjafarþing því að standa til 1. október 2014 og nýtt þing gæti þá ekki hafist í samræmi við 4. mgr. 1. gr. þingskapa. Ljóst er þó að ekki er ætlun að breyta samkomudegi Alþingis nema þetta eina sinn. Leggur nefndin því til breytingu á frumvarpinu til að tryggja að unnt verði að hefja 144. löggjafarþing annan þriðjudag í september 2014.

Breytingin er með þeim hætti að:

Við 1. gr. bætist ný efnismálsgrein, svohljóðandi:

143. löggjafarþing skal standa fram til samkomudags reglulegs Alþingis 2014, annars þriðjudags septembermánaðar það ár, sbr. 4. mgr. 1. gr.