142. löggjafarþing — 23. fundur,  4. júlí 2013.

þingsköp Alþingis.

30. mál
[19:36]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get svo sem sagt við hv. þm. Helga Hjörvar að ég eigi nú ekki allt þetta hrós skilið og ekkert af því kannski. En það er annað mál. Ég skal taka við öllu hrósi. (Gripið fram í: Þetta er bara byrjunin.) Ég get hins vegar fullvissað þingmenn um að samin hafa verið verri og óljósari frumvörp en þetta frá forsætisráðherra. (Gripið fram í: Geturðu nefnt dæmi?) Ég er ekki með það í kollinum en ég gæti fundið mörg á skömmum tíma. Þetta er eingöngu gert til að hnykkja á hlutunum, svo að það sé enginn vafi. Það getur vel verið að frumvarpið eins og það var hefði alveg dugað og sloppið frá þessu öllu saman en þessi tillaga er eingöngu í þeim tilgangi að taka af allan vafa.