dagskrártillaga.
Virðulegur forseti. Hvað er hér á ferðinni? Það er verið að flytja tillögu um að setja mál til nefndar til að fjalla um það og skoða frá öllum hliðum. Það er ákvörðunin sem Alþingi er að taka í þessari atkvæðagreiðslu. Það er ekki verið að veita ríkisborgararétt, það er verið að ákveða að tillagan fari til nefndar og hljóti þar þinglega meðferð. Þetta er tillaga um að veita manni sem kom á framfæri upplýsingum sem öll heimsbyggðin hefur tekið þátt í að hneykslast á Bandaríkjunum út af. Maður sem gengur inn í það hlutverk að verða afhjúpari, uppljóstrari, sem kemur á framfæri við okkur og heimsbyggðina alla upplýsingum sem varða alla mjög miklu máli, skipta miklu máli.
Ég skil ekki tregðu sumra þingmanna til að taka þetta mál til að minnsta kosti efnislegrar umfjöllunar. Það felst ekki meiri skuldbinding í því en það, að ræða málið. Ég segi já.