dagskrártillaga.
Virðulegi forseti. Ég fagna sérstaklega því frumkvæði sem kemur frá þingmönnum í þessum sal að sinna þessu mikilvæga máli sem lýtur að því að gagnsæi sé í samskiptum þjóða og við fáum, almenningur, í alþjóðlega samfélaginu mikilvægar upplýsingar sem varða almannahag.
Það er mikilvægt að Alþingi taki sér stöðu í málum eins og þessum. Við höfum í gegnum árin skapað farveg um veitingu ríkisborgararéttar sem kveður á um að þingnefnd skoði með opnum huga og fari vel yfir hvert mál af þessu tagi. Ég tel að góður bragur sé á því að þingnefnd taki þetta mál og skoði frá öllum hliðum. Ég segi með stolti já.