142. löggjafarþing — 23. fundur,  4. júlí 2013.

dagskrártillaga.

[23:18]
Horfa

Freyja Haraldsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Mig langaði að bæta við það sem ég sagði áðan. Það að hafa hugrekki til að afhjúpa óþægilegar staðreyndir finnst mér bara frekar aðdáunarvert. Fólk sem hefur slíkt hugrekki er yfirleitt fólkið sem breytir heiminum mest. Það að við getum ekki einu sinni í þessu verndaða umhverfi hér inni sýnt okkar hugrekki og tekið ákvörðun um að láta skoða málið er mjög magnað. Í virðingu við þetta hugrekki vil ég segja já.