veiðigjöld.
Hæstv. forseti. Hæstv. fjármálaráðherra segir að ekkert skynsamlegt orð hafi fallið frá stjórnarandstöðunni. Sá sem hér stendur hefur m.a. sagt að sjávarútvegur sé mikilvægasta atvinnugrein landsins og greinin eigi að búa við hagstæð skilyrði, það eigi að ná sátt í sjávarútvegi og það eigi að losa hann undan því að hér sé kosið um eina atvinnugrein á fjögurra ára fresti. Hér kemur hæstv. fjármálaráðherra og segir að þetta sé bull. (Gripið fram í: Um veiðigjöld.) Það var greinin um veiðigjöld.
Við höfum talað fyrir sátt, ekki bara við útgerðarmenn, heldur við þjóðina sem hefur ítrekað talað fyrir því að við fáum auðlindagjald. Af hverju? Jú, vegna þess að við ætlum að nota það í samfélagsneysluna. Það er þess vegna sem þetta tengist. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni að gera þetta svona skýrt af því að hann veit hverjir það eru sem þurfa mest á aðstoð að halda. Við höfum aðrar skoðanir á því. Við vorum hér að greiða atkvæði um almannatryggingar. Við berum hag þeirra fátæku fyrir brjósti og þeirra sem eiga undir högg að sækja. Fyrir því ætlum við að berjast. (Gripið fram í.) Það gengur fram af mér hvernig menn ganga fram hér í (Forseti hringir.) málflutningi, í hagsmunagæslu fyrir sérhagsmuni gegn almannahagsmunum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)(JónG: … fyrir fjórum árum.)(Forseti hringir.)