veiðigjöld.
Herra forseti. Ég er andvígur þessu máli vegna þess að ég tel að hér sé allt of, allt of langt gengið. Ég hefði verið tilbúinn til að skoða ýmsar lagfæringar á þessu fyrirkomulagi. Ég er hér að gera grein fyrir afstöðu minni. Það hélt ég að ætti almennt að gera í atkvæðaskýringum, að menn útskýrðu hvernig þeir greiddu atkvæði. En hæstv. fjármálaráðherra gekk hér áðan í ræðu eiginlega lengra en maður á að venjast í því að nota þetta tækifæri til að ráðast hér að þeim sem ekki eru sammála honum í salnum.
Ég segi bara þetta: Ég frábið mér geðvonskulega og skætingslega einkunnagjöf hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um málflutning annarra í salnum. (Gripið fram í.) Ég hélt hér 40 mínútna ræðu þar sem ég fór nákvæmlega yfir það sem fjármálaráðherra sagði að enginn hefði talað um, um grundvöllinn og hugmyndafræðina á bak við það að sækja auðlindarentuna og að þjóðin eigi að fá sanngjarna hlutdeild í henni. Ég hef mín rök og mín sjónarmið fyrir því að hér sé allt of langt gengið til baka í þeim efnum. Maður á ekki að þurfa að sitja undir einkunnagjöf af þessu tagi. Hæstv. fjármálaráðherra ætti að reyna að vera hér í aðeins betra skapi, jafnvel þótt klukkan sé orðin tólf (Forseti hringir.) og hann sé kannski ekki alveg sáttur við ýmislegt á sínum eigin bæ.