142. löggjafarþing — 23. fundur,  5. júlí 2013.

veiðigjöld.

15. mál
[00:08]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að gera grein fyrir atkvæði mínu og jafnframt okkar hjá Bjartri framtíð. Við munum ekki greiða atkvæði með frumvarpinu, ekki með þessari lækkun á veiðileyfagjaldinu. Ég vil samt að það komi fram að það er margt ágætt í þessu frumvarpi sem við komumst að í vinnu atvinnuveganefndar. Ég held að við höfum ekki reynt nóg, svo vægt sé til orða tekið, að komast að sameiginlegri niðurstöðu um frumvarpið. Ég held að það hefði vel verið hægt. Ég held, eins og ég sagði áðan, að ef við tökum pólitíkina aðeins út fyrir sviga getum við gert það. (ÖJ: Þetta er hagsmunabarátta.)