142. löggjafarþing — 26. fundur,  11. sept. 2013.

hjúkrunarrými á Suðurnesjum.

[15:36]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra mjög skýr og greinargóð svör og ítreka bara hér með þá spurningu mína sem hann ætlar að svara næst, þ.e. um stefnu hans í málefnum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem á við hættulega mikinn rekstrarvanda að glíma og hvort hann ætli að beita sér fyrir því að tryggja reksturinn til framtíðar.