142. löggjafarþing — 27. fundur, 12. sept. 2013.
afbrigði um dagskrármál.
Virðulegur forseti. Þegar undirbúningur var fyrir þá örfáu daga sem eftir eru af þessu þingi bar þetta frumvarp á góma. Í því eru nú nokkuð fleiri greinar en um var rætt og einhverjar þeirra þurfa hugsanlega lengri tíma en það sem eftir lifir þessa þings þannig að ég treysti á að við meðferð nefndarinnar verði tekið tillit til þess.