142. löggjafarþing — 28. fundur, 16. sept. 2013.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá 6. þm. Reykv. s., Róberti Marshall, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Sigrún Gunnarsdóttir, en 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.
Kjörbréf Sigrúnar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Sigrún Gunnarsdóttir, 6. þm. Reykv. s, undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]