umfjöllun nefnda um skýrslu um Íbúðalánasjóð.
Virðulegur forseti. Það er ástæða til að taka fram að ég tel að engin tímamörk eigi að vera á forseta þegar hann skýrir mál sitt gagnvart þingmönnum. En ég verð að játa að ég skil ekki alveg hvert þessi umræða er komin vegna þess að ég þekki það, bæði sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar og umhverfisnefndar hér áður og fyrr, að oft skarast mál milli nefnda, eru til umfjöllunar í fleiri en einni nefnd í senn, fara til umsagnar eða haldnir eru sameiginlegir fundir eftir atvikum. Um rannsóknarskýrsluna má til dæmis benda á að þar sem hún var til meðferðar var efnahags- og viðskiptanefnd og einnig annarri nefnd þingsins boðið að taka þátt í umfjöllun þeirrar nefndar sem fór með það á sínum tíma og hefði kannski verið rétt að gera það í tilfelli velferðarnefndarinnar.
Ég vona að mönnum sé ekki alvara með að halda því fram að eftir að varið hefur verið 240 milljónum, hygg ég að ég fari rétt með, að rannsóknarnefnd rannsaki málefni Íbúðalánasjóðs þá eigi velferðarnefnd sem á að fjalla um Íbúðalánasjóð allt kjörtímabilið ekki að fá formann nefndarinnar á sinn fund til að upplýsa sig um það hvers hann hefur orðið áskynja í málinu. Eigum við ekki að nýta okkur þá reynslu og þekkingu sem þannig hefur verið (Forseti hringir.) aflað og kostað til á vegum þingsins. Ég bara spyr. (Forseti hringir.)