142. löggjafarþing — 28. fundur,  16. sept. 2013.

aðgangur að landbúnaðarmarkaði ESB.

[15:21]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að segja að þessi fyrirspurn gladdi mig vegna þess að mér hefur þótt ákaflega leiðinlegt að heyra þann tón hjá nokkrum af hv. þingmönnum flokks hv. þm. Árna Páls Árnasonar að undirstöðuatvinnugreinarnar, gömlu atvinnugreinarnar, séu á einhvern hátt lakari, séu á einhvern hátt að falla úr gildi, séu eitthvað sem ekki sé hægt að byggja á og þess vegna þurfi að líta annað. En ég gat ekki skilið annað af orðum hv. þingmanns en að hann væri nú ekki þeirrar skoðunar að matvælaframleiðsla, þar með talin framleiðsla á skyri, væri framtíðaratvinnugrein. Það er ánægjulegt að heyra það.

Hins vegar verðum við að sjálfsögðu að gera okkur grein fyrir því að við erum þátttakendur á alþjóðlegum markaði. Til að mynda flytjum við út heilmikið af sjávarafurðum og sköpum vinnu fyrir fólk í Bretlandi og víðar við að vinna úr þeim afurðum. En hingað er ekki flutt kók, svo ég nefni sem dæmi, frá Atlanta, það er ekki allt kók unnið í Atlanta og flutt þaðan um allan heim, Nei, í staðinn selja menn sérleyfi svoleiðis að hægt sé að vinna það á hverjum stað og við getum drukkið hér gosdrykki úr íslenska góða vatninu. Þetta dregur úr flutningskostnaði o.s.frv. Allt telst þetta til kosta við milliríkjaviðskipti. Við Íslendingar verðum að vera virkir þátttakendur í viðskiptum milli landa og það getur falist í því stundum að við leyfum öðrum að framleiða einhverjar vörur sem við höfum fundið upp og þróað. Á endanum er þetta öllum í hag.

Hvað varðar hins vegar sóknaráætlun um framleiðslu — hv. þingmaður nefndi sérstaklega landsbyggðina — skiptir þar auðvitað sköpum eins og við höfum fengið að heyra aftur og aftur í umræðunni að undanförnu að þeir sem eru með góðar hugmyndir, og þær eru margar og uppbyggilegar, fái svigrúm og tækifæri til að hrinda þeim í framkvæmd. Eins og haldið hefur verið á málum er nánast engin hugmynd svo einföld og svo augljóslega góð að hún komist áfram í gegnum kerfið án þess að menn þurfi að sækja um að minnsta kosti 20 leyfi, oft 50 leyfi, fara fram og til baka milli stofnana og lenda oft í sjálfheldu með það.

Besta leiðin er því sú að (Forseti hringir.) leyfa fólki að spreyta sig með sínar hugmyndir.