aðgangur að landbúnaðarmarkaði ESB.
Virðulegur forseti. Við erum að opna markaði um allan heim, ekki hvað síst á þeim svæðum þar sem menn horfa fram á mestan vöxt í framtíðinni. Það verður stöðnun eða samdráttur til að mynda á evrusvæðinu næstu árin, jafnvel næstu áratugina, og þess vegna er ríkisstjórnin með metnaðarfulla áætlun um að sækja fram á nýjum mörkuðum, þeim mörkuðum sem eru vaxandi.
Það er líka ljóst að eftirspurn eftir matvælum í heiminum mun aukast jafnt og þétt og menn spá því að verð matvæla muni hækka í fyrirsjáanlegri framtíð. Í þessu liggja auðvitað mikil sóknarfæri fyrir íslenska matvælaframleiðslu.
Hv. þingmaður talaði um störf við framleiðslu á skyri sem verðmæt störf. Ég mundi reyndar vilja sjá fólk sem er að vinna við matvælaframleiðslu á Íslandi, úrvinnslu matvæla, með betri laun. Vonandi verða þetta verðmæt störf. Það eru að minnsta kosti öll tækifæri til þess að gera störf við vinnslu og framleiðslu matvæla verðmætari en nú er vegna þeirrar heimsþróunar sem við horfum fram á en til að það megi verða verðum við að horfa á heiminn allan sem tækifæri.