vegalagning um Gálgahraun.
Forseti. Í dag er merkilegur dagur. Í dag er dagur íslenskrar náttúru. Til hamingju með hann, kæru hv. þingmenn.
Mig langaði að spyrja hæstv. innanríkisráðherra eftirfarandi:
Gálgahraun var friðlýst árið 2009. Verndargildi Gálgahrauns liggur meðal annars í því hversu ósnortið það er. Forsendur friðlýsingarinnar eru jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar.
Forseti. Í dag má gera ráð fyrir því að stórvirkar vinnuvélar byrji að ryðja brautina fyrir nýjan Álftanesveg í Gálgahrauninu. Í dag er dagur íslenskrar náttúru. Til hamingju.
Forseti. Helstu náttúruverndarsamtök landsins hafa mótmælt þessum fyrirhuguðu vegaframkvæmdum í Gálgahrauni og fóru fram á lögbann á framkvæmdirnar hjá sýslumanni Reykjavíkur. Synjun sýslumanns um lögbann hefur verið kærð til dómstóla og málið verður þingfest næsta föstudag.
Forseti. Umhverfismat fyrir nýjan Álftanesveg rann út árið 2012. Málaferli vegna framkvæmdanna eru hafin. Ég vil því spyrja hæstv. innanríkisráðherra í fyrsta lagi hvers vegna nýs umhverfismats er ekki aflað áður en framkvæmdir hefjast og í öðru lagi hvort hæstv. ráðherra telji ekki að rétt hefði verið að fresta framkvæmdum meðan málaferli standa yfir, enda ljóst að um óafturkræfar aðgerðir er að ræða.