störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég kveð mér hljóðs til að spyrja hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar um mál málanna, skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem margir bíða með óþreyju. Ástæðan er sú að við meðferð Hagstofumálsins hafa vaknað ákveðnar spurningar um skuldaaðgerðirnar sem fyrirhugaðar eru því að þar er gert ráð fyrir að safna upplýsingum um breytingar sem gerðar hafa verið á lánum. Ég veit að það hefur vakið þær áhyggjur hjá fólki að hugsanlega standi til að draga frá skuldaleiðréttingum þær leiðréttingar sem fólkið hefur þegar notið, t.d. í 110%-leiðinni eða í öðrum sérstökum aðgerðum gagnvart skuldugu fólki. Það er auðvitað mikið grundvallaratriði og ég veit að við eigum ekki von á útfærslunum fyrr en í nóvember næstkomandi. En þessi grundvallaratriði hljóta þó að liggja fyrir, hvort ætlunin er að leiðrétta almennt fyrir verðbólguskotinu 2007–2010, eins og segir í stjórnarsáttmálanum, eða hvort reikna á út það áfall og draga síðan frá þær aðgerðir sem fólk hefur þegar notið þannig að ýmsir, t.d. sem fengið hafa skuldaúrræði í 110%-leiðinni, fengju ekki neitt út úr þessum leiðréttingum.
Ég geri ráð fyrir því að það liggi fyrir hvort menn ætla að draga frá það sem gert hefur verið fyrir fólkið með sérstökum vaxtabótum eða 110%-leiðinni eða með sérstakri skuldaaðlögun, en ef það liggur ekki fyrir þá spyr ég hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar hvort honum finnist það rétt. Á endanum er þetta bara pólitísk ákvörðun sem tekin verður hér í þinginu og tillögur um það frá nefnd hans. Það er einföld spurning um sanngirnissjónarmiðin í þessu, hvort leiðrétta eigi almennt hjá öllum eða hvort draga eigi frá þær leiðréttingar sem fólk hefur þegar fengið, t.d. í 110%-leiðinni. Og kannski svona í framhjáhlaupi vil ég spyrja hvort hv. formaður telji raunhæft að tillögur stjórnarmeirihlutans muni liggja fyrir hvað þetta varðar á árinu 2013 eða hvort hann telji raunsætt að þær dragist fram á árið 2014 eða jafnvel fram eftir því ári.