142. löggjafarþing — 29. fundur,  17. sept. 2013.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

48. mál
[16:06]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Í þessari grein erum við að kalla eftir fresti til að sú vinna sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa verið að vinna að, um tillögu um eitt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn, geti haldið áfram. Þar eru ýmis atriði enn óútkljáð og þess vegna er það skoðun meiri hlutans að veita aukinn tímafrest til að leiða þá vinnu til lykta. Ég segi já.