142. löggjafarþing — 29. fundur,  17. sept. 2013.

leikskóli að loknu fæðingarorlofi.

37. mál
[17:41]
Horfa

Flm. (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir afar góða umræðu um framkomna þingsályktunartillögu og jákvæðar undirtektir þverpólitískt, sem er sérstaklega ánægjuleg upplifun. Þó að áður hafi verið vakin athygli á því, undir þessari umræðu, held ég að rétt sé að vekja athygli á því að hér í þingsal er um að ræða mikinn mannauð að því er varðar reynslu af sveitarstjórnarstiginu og reynslu af uppeldi og kennslu. Hér hafa talað mjög margir kennarar af ýmsum skólastigum og sveitarstjórnarmenn sem hafa reynslu af því að sinna sveitarfélögunum og hafa haft ýmiss konar aðkomu að því að sinna börnum og framtíðinni.

Mig langar til að bregðast við örfáum punktum sem komu fram í umræðunni. Í fyrsta lagi var mér bent á það hér utan ræðustóls að í tillögunni er sagt: „nefnd með þátttöku sveitarfélaganna og annarra hagsmunaaðila“. Þetta er yfirsjón þeirrar sem hér stendur því að sveitarfélögin eru ekki hagsmunaaðilar heldur hluti af samfélaginu. Það skiptir máli að orða þetta rétt og þetta bendir til þess að sveitarstjórnarhjartað í mér sé orðið eitthvað kalkað. Fólk sem var í sveitarstjórn fyrir ekki svo löngu hefur bent mér á þetta og ég heiti því að ég mun láta laga þetta áður en mælt verður fyrir tillögunni á nýju þingi.

Hv. þm. Björt Ólafsdóttir nefndi að hér hefði verið fullyrt að um lögboðna þjónustu væri ræða. Ég minnist þess ekki að hafa gert það en ef svo er þá var það ekki meiningin heldur ræddi ég um að skilgreina þyrfti þetta sem hluta af grunnþjónustu og það var hluti af þeirri pólitík sem ég var að rekja hér áðan, að fjölskyldur nytu þessarar þjónustu án endurgjalds, sem hv. þm. Bjarkey Gunnarsdóttir fór ágætlega yfir að því er varðar aðkomu Vinstri grænna í pólitískri umræðu.

Hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir nefndi þó nokkra punkta í þessu og mér finnst áhersla hennar á jafnrétti barna gríðarlega mikilvægur punktur sem ég kom ekki að í framsögu minni. Hv. þm. Pétur H. Blöndal gekk enn lengra og sagði að við þyrftum að horfa á þetta út frá sjónarhorni barnsins. Það er kannski dýrmætasta veganestið í vinnu sem varðar almennt fjölskyldur og heimili í landinu. Stundum erum við að tala um aðgerðir til að bjarga heimilunum og horfum þá stundum bara á heimilin eins og þau séu rekstrareining. En heimilin eru líka þetta, heimilin eru líka uppeldi og daglegt líf í kringum börn og það hversu sveigjanlegt eða ósveigjanlegt atvinnulífið er til að mynda eins og hér hefur líka verið rætt og mikilvægi þess að atvinnulífið komi að þessari umræðu.

Þegar ég nefndi hagsmunaaðila þá nefndi ég það mjög vítt og gerði ráð fyrir að nefndin mundi útfæra það betur. Ég var líka að hugsa um stéttarfélög, kennarasamtökin, fagfélögin og þá aðila en auðvitað er gríðarlega mikilvægt að þarna komi inn umræðan um sveigjanlegan vinnutíma, um styttingu vinnuvikunnar, ýmislegt sem verið hefur í umræðunni varðandi samspil fjölskyldulífs og vinnumarkaðar. Þá erum við náttúrlega komin eitt skref inn í umhverfi kjarasamninga þannig að sú umræða sem hér er er ekkert eyland, enda gerum við ráð fyrir að hún taki töluverðan tíma og við höfum tímann þar til lögin hafa komist til framkvæmda til að útfæra þessa nálgun.

Af því að hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir nefndi tiltekin úrræði sem hafa verið fyrir hendi, sem hafa verið annars konar rekstrarform en nálgun opinberra aðila eða sveitarfélaga, þá fjallar þessi tillaga í sjálfu sér ekkert um það. Þar eru pólitísk bitbein og þau hafa verið rædd en mér finnst þetta ekki vera farvegurinn eða vettvangurinn fyrir þá umræðu beinlínis. Það sem hér er rætt er að sveitarfélögin hafi yfir þessu tilboði að ráða, bjóði sem sagt þennan valkost en að við séum ekki í þeirri klemmu að það séu annaðhvort lítil eða engin úrræði eða fáir aðilar sem bjóða úrræði sem eru misgóð eins og við þekkjum með misboðlegum aðstæðum, sem er að sumu leyti barn síns tíma en sums staðar mjög vel leyst. Það eru gríðarlega mörg dæmi um góða leikskóla sem eru reknir af einkaaðilum sem hafa til að mynda orðið til í gegnum félagslegt frumkvæði á sínum tíma meðan þessi úrræði voru ekki einu sinni fyrir hendi. Ég vil nefna sem dæmi Barnaheimilið Ós sem var og er foreldrarekið dagheimili sem var sett á stofn af foreldrum sem höfðu kynnst úrræðum af þessu tagi erlendis hafandi verið í námi. Sá leikskóli er enn til næstum því 40 árum síðar, ég held það séu nákvæmlega 40 ár á þessu ári.

Hv. þm. Þórunn Egilsdóttir dró líka fram þennan punkt sem ég reifaði aðeins í framsögu minni, þ.e. jafnrétti barna ekki bara óháð félagslegri stöðu heldur líka óháð búsetu. Þar komum við inn á hina mismunandi stöðu sveitarfélaganna og mikilvægi þess að við séum í raun að tryggja að staða barnafjölskyldna sé jöfn óháð búsetu, að það sé ekki undir hælinn lagt að þjónusta við barnafjölskyldur sé fyrir hendi í sveitarfélögunum. Þá er ég ekki endilega að tala um einhverja lögþvingan. Ég er miklu frekar að tala um það að við nálgumst þetta þannig að það sé raunverulegt eftirsóknarvert sameiginlegt verkefni fyrir öll sveitarfélögin að búa vel að fjölskyldum. Það er auðvitað það sem maður sér og það er áhugavert að sjá það. Ég rakst á það í umræðu fyrir einhverjum mánuðum að sú breyting hefði orðið hvað varðar val á búsetu að áður fyrr hafi val á búsetu ráðist meira af starfi karlsins en sé farið að ráðast meira af skóla og möguleikum fyrir börnin, að þetta sé ákveðin samfélagsþróun sem sé að eiga sér stað. Það er því eftirsóknarvert fyrir sveitarfélög að hafa öfluga valkosti fyrir barnafjölskyldur og ég held að allir sveitarstjórnarmenn úti um land þekki þetta á eigin skinni. Hvort sem það er íþróttaaðstaða, tónlistarnám eða hvað sem er fyrir börnin — þar með eru orðnar meiri líkur á að fólk setjist að varanlega.

Hv. þm. Pétur Blöndal fór yfir ýmsar hliðar málsins eins og hann gerir einatt og meðal annars umræðuna um heimgreiðslur sem eru heldur ekki hluti af þessari umræðu og er enn og aftur pólitískt bitbein og jarðsprengjusvæði. Rannsóknir liggja að baki því að heimgreiðslukerfi letja konur til að fara á vinnumarkaðinn og eru þess vegna kerfi sem eru varhugaverð. En um leið held ég að ef við nálgumst þessa tillögu með þverpólitískum gleraugum þá sé það eitt af því sem verði rætt, það hlýtur að vera eitt af því sem er undir en útgangspunkturinn hjá tillöguflytjanda er ekki sá.

Hv. þm. Páll Valur Björnsson með reynslusöguna úr fataklefanum — það skiptir vissulega miklu máli að við áttum okkur á því að þarna eru litlar sálir á ferð. Það vill svo skemmtilega til að hér er verið að tala um ömmur og afa nútímans og hér stendur fjögurra barna amma sem er ekki að sinna barnabörnunum í augnablikinu heldur að halda ræður um hve mikilvægt sé að sinna barnabörnunum. En þetta er sá veruleiki sem er uppi og við erum gæfusöm að geta nýtt okkar pólitíska innsæi og vit til að leggja fram tillögur sem eru til góðs fyrir samfélagið í heild og ekki síst fyrir börnin og þar með fyrir framtíð þessa lands.

Ég vil að lokum þakka fyrir góða yfirferð og góða umræðu um málið. Ég vænti þess að málið fari til nefndar að lokinni þessari umræðu og nái að verða sent til umsagnar. Væntanlega mun það ekki klárast á morgun en þá mun ég mæla fyrir því í sömu eindrægni og gleði í október og ég gerði í dag.