142. löggjafarþing — 30. fundur,  18. sept. 2013.

þverfagleg samvinna í heilbrigðisþjónustu.

[15:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og veit til þess að hún hefur mikla og djúpa þekkingu á þessum málaflokki eins og áður hefur komið fram í okkar ágætu samtölum þar sem við höfum skipst á upplýsingum.

Það er alveg rétt að skipulag og verkferlar í heilbrigðisþjónustunni eru börn síns tíma. Það gengur hægt að koma fram breytingum á þessu en ég tek undir með hv. fyrirspyrjanda um það að þekking og færni starfsfólks í okkar þjónustu á þessu sviði ríkisins, í heilbrigðisþjónustunni, er gríðarlega mikil og við höfum fullt færi til að nýta þá þekkingu betur.

Eins og hv. fyrirspyrjandi nefndi er brýnt að endurskoða skipulag starfa. Ég tel raunar að við höfum tekið örlítið skref með stjórnendum Landspítala – háskólasjúkrahúss um daginn þar sem við mæltumst til þess að stjórnendur spítalans færu að endurskipuleggja samstarf og þverfaglega vinnu til að nýta meðal annars krafta og þekkingu betur á viðkomandi sviðum. Þegar þetta er gert og við tökum svona lítil skref þá hljóma oft og tíðum gamalkunnar raddir sem setja þetta allt í samhengi við kjarabaráttu eða álagsstigið sem er eins og það er. Það er því erfitt að koma þessum breytingum í gegn. Ég tel að sú reynsla sem við munum fá út úr því verkefni sem Landspítali – háskólasjúkrahús er að fara í nýtist okkur fyrir það þarfa og brýna verk sem lýtur að því að taka stærri skref í þessum efnum. Ég hef ákveðnar hugmyndir um það sem ég skal koma að í mínu síðara svari þar sem tíminn er nú þegar á þrotum. Málefnið er stórt og mikið og þarf langa og góða umræðu. (Forseti hringir.)