143. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2013.

afbrigði um sætaúthlutun.

[16:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. 4. mgr. 3. gr. þingskapa, um hvernig hluta skal um sæti þingmanna, þannig að tekin verða frá sæti næst inngangi í salinn fyrir þingflokksformenn, en þeir dragi innbyrðis um þessi sæti. Skoðast afbrigðið samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.