fjárlög 2014.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við frumvarp sem er nýlagt fram, frumvarp til fjárlaga ársins 2014 sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur mælt fyrir. Það er gleðilegt að frumvarpið skuli vera komið fram því að í því birtist heildarsýn ríkisstjórnarinnar. Það kemur fram í frumvarpinu hverjar áherslurnar eru, hvaða áherslur hver ráðherra setur, hvar skuli skorið niður og hvar bætt í.
Ég verð samt að minnast á það í upphafi ræðu minnar að þetta frumvarp á eflaust eftir að taka þó nokkrum breytingum í þinginu því að þingmenn fara með fjárveitingavaldið. Þingmennirnir 63 sem hafa verið kjörnir á þing ákveða endanlega hvernig fjárlögin sjálf líta út eftir 1., 2. og 3. umr. og eftir ítarlega yfirferð í fjárlaganefnd þar sem kallað verður eftir aðilum til að þingmenn sem sitja í fjárlaganefnd fái gleggri sýn og gleggri mynd af því hvað þetta frumvarp til fjárlaga inniheldur.
Í umræðunni síðustu daga hefur svolítið mikið verið látið líta út fyrir að þetta sé endanlegt plagg, óbreytanlegt, og hefur umræða í fjölmiðlum oft og tíðum á einhvern hátt endurspeglað það eins og þetta sé hin heilaga bók sem ekki verður breytt. Ég verð að koma því að að svo er ekki.
Jafnvel hafa uppsagnir verið raktar til þessa frumvarps en ég tel að það byggi á miklum misskilningi að álíta að þetta sé endanlegt plagg því að eins og ég sagði áðan er þetta breytanlegt í þinginu. Og er það vel.
Það er mjög til fyrirmyndar að nú er búið að taka upp þá nýju reglu að tekjufrumvarp stjórnarinnar er lagt fram á sama tíma og fjárlagafrumvarpið. Það gefur þingmönnum langtum betri innsýn í það hvernig ríkissjóður stendur og hvernig áætlað er að ná í þær tekjur sem liggja til grundvallar fjárlagafrumvarpinu sjálfu. Þetta er alveg til fyrirmyndar og léttir þingmönnum öllum vinnuna mjög því að eins og málin hafa verið unnin síðustu þing var vinna við fjárlagagerð langt komin þegar tekjuöflunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar birtist. Þá kom oft í ljós mikið misgengi og miklar missagnir og ljóst var að jafnvel var ekki gert ráð fyrir tekjum á móti þeim gjöldum sem birtust í fjárlögum þeirra ára. En nú er þetta komið í betri farveg.
Það er þó eitt sem truflar mig örlítið, það að fjáraukalög fyrir 2013 liggja ekki enn fyrir sem þingmál. Það er einn óvissuþáttur. Við höfum þá að minnsta kosti ekki í dag nákvæma yfirsýn yfir það hvernig fjárlagaárinu 2013 muni ljúka. Það er von mín að fjáraukalagafrumvarpið fyrir árið 2013 líti brátt dagsins ljós og það er einlæg von mín að ekki verði mikið um aukafjárveitingar sem megi rekja til beinnar fjárframúrkeyrslu ríkisstofnana. Þarna er ég líka að vísa í að það frumvarp er ekki komið fram þannig að ég ætla að vera vongóð um að fjáraukalagafrumvarpið muni líta þokkalega vel út til að enn frekar verði hægt að byggja á fjárlögum ársins 2014 og að þá haldi sá rammi sem gefinn er í frumvarpinu fyrir árið 2014.
Virðulegi forseti. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur farið ítarlega yfir þær forsendur fjárlaga sem birtast í þessu frumvarpi. Það er óþarfi að fara yfir það á ný í 1. umr. í þingræðu þannig að ég ætla frekar að tala almennt um frumvarpið. Það sem mér þykist helst sæta tíðindum í fjárlagagerð fyrir árið 2014 er að nú stígur fram ný ríkisstjórn og ætlar sér að skattleggja þrotabú gömlu bankanna. Það var kominn tími til að það skref yrði stigið því að þrotabú gömlu bankanna eru einu lögaðilarnir hér á landi sem hafa verið undanþegnir skattskyldu. Það er mjög óeðlilegt að hægt sé að fría sig skattskyldu með undanþáguákvæði í lögum. Það er verið að rétta hér af og nú sitja allir við sama borð, hvort sem það eru lögaðilar eða einstaklingar. Þeir sem hafa tekjur á Íslandi eru skattskyldir. Þessu ber að fagna. Þarna er verið að sækja rúma 11 milljarða til að geta þá meðal annars rekið ríkissjóð hallalausan.
Því ber líka að fagna að í þessu fjárlagafrumvarpi kemur fram að það á að skila 500 millj. kr. tekjuafgangi í lok árs 2014. Það er mjög metnaðarfullt markmið. Eins og hefur komið fram er í fyrsta sinn í sex ár gert ráð fyrir að fjárlög séu réttu megin við núllið. Það er góður árangur og við í ríkisstjórnarflokkunum ætlum að gera allt sem við getum til að þessar forsendur standi. Þó að eitthvað verði fært til innan frumvarpsins, dregið úr á einum stað og bætt við á öðrum stað er það þessi rammi sem okkur er settur nema hreinlega að við komum þá í samstarfi við hv. efnahags- og viðskiptanefnd fram með nýja tekjustofna ef útgjöldin verða of mikil miðað við forsendur fjárlaga.
Það má líta svo á að tekjur ríkissjóðs séu takmörkuð auðlind. Þegar einhver auðlind er takmörkuð er aðsókn í hana meiri en gefa má frá sér eða nýta. Þess vegna spyr ég mig oft af hverju ekki sé tekin auðlindarenta af þeim aðilum sem streyma hér í gegnum fjárlögin. Af hverju er til dæmis ekki tekið ríkisábyrgðargjald? Þessi umræða sprettur oft upp og læt ég hana liggja í loftinu því að þar er einn þáttur þar sem við gætum jafnvel sótt tekjur. Eins og ég segi er ákveðinn status sem aðilar fá njóti þeir ríkisábyrgðar og þá er ég að vísa í erlenda lánamarkaði og rekstur þeirra stofnana og fyrirtækja sem njóta ríkisábyrgðar. Hvers vegna gjalda þá ekki þessir aðilar ríkinu sitt með því að greiða hér ríkisábyrgðargjald?
Þegar fjárlagafrumvarp er lagt fram er það gagnrýnt frá öllum hliðum, öllum þeim sem eiga hagsmuni sem birtast í fjárlagafrumvarpinu, og það er mjög eðlilegt að svo sé. Fjárlagafrumvarpið hefur verið gagnrýnt mjög af þeim aðilum sem hafa hagsmuni af því að hér komi fram aukning á fjárlögum. Það er alveg eðlilegt. Þetta er þróun sem hefur verið um langa hríð en ég minni þá á sem gagnrýna kannski frumvarpið mest að staldra við og hugsa sinn gang því að öll viljum við að Ísland sæki fram á alþjóðavettvangi og það að ná tökum á ríkisfjármálum er einn stærsti þátturinn í að það sé hægt.
Eins og kom fram í máli hæstv. forsætisráðherra í gær í stefnuræðu eigum við sem þjóð öll tækifæri. Við eigum gnótt auðlinda og stór tækifæri á norðurslóð. Við þurfum að hafa sjálfstraust, kjark og þor til að bretta upp ermar og standa stolt. Þó eru einstaka blikur á lofti og ég hef til dæmis áhyggjur af þróun álverðs, sér í lagi þegar stóriðjunni var gert að greiða fyrir fram greiddan skatt á árinu 2010 þegar gerð var breyting á heimildarlögum um stóriðju vegna skattgreiðslna. Með þeim lögum var veitt heimild til að gera viðauka við álsamninga stóru álveranna hér á landi um fyrirframgreiðslu upp í álagningu á tekjuskatti og öðrum opinberum gjöldum.
Nú hefur það sýnt sig að álverð er mjög á niðurleið og álverin sem starfa hér á landi sýna meira tap á þessu ári en því síðasta. Það eru því blikur á lofti vegna þess að í lögunum sem samþykkt voru árið 2010 er klausa um það að íslenska ríkinu beri að endurgreiða eftirstöðvar af fyrirframgreiðslunni sem tekið var við á árinu 2010 að lokinni álagningu 2018. Þarna eru jafnvel einhverjir milljarðar sem við Íslendingar þurfum að standa skil á komi það í ljós að stóriðjan er að tapa og álverð að fara niður þannig að þarna er einn þáttur sem við þurfum að taka tillit til til framtíðar og horfa til framtíðar um hvort þetta sé raunveruleg skuld á gjalddaga árið 2018.
Það er líka annað sem truflar mig, t.d. rangar ákvarðanir í ríkisútgjöldum sem síðasta ríkisstjórn fór fyrir, svo sem þegar hæstv. þáverandi fjármálaráðherra fór fram með skuldafjárútboð á 6% vöxtum og borgaði síðan upp lán Norðurlandanna sem báru 3,2% vexti. Þarna myndast mikil uppsöfnuð gjöld, að óþörfu að mínu viti, þegar tekin eru lán á hærri vöxtum en lánið sem er greitt upp. Við í fjárlaganefnd höfum nú þegar sent fyrirspurn til fjármálaráðuneytisins um útgjaldaaukningu ríkissjóðs á ári. Svo truflar mig líka þetta 800 milljarða kr. lán í erlendum gjaldeyri sem Landsbankinn var látinn taka þegar verið var að skipta nýja og gamla bankanum upp. Það var byggt á Icesave-kröfunum á sínum tíma sem kom svo í ljós að ekki var lagastoð fyrir þannig að þar liggur inni rúmlega 800 milljarða skuldabréf í erlendum gjaldeyri. Það er sérstakt áhyggjuefni vegna þess að nú hefur Hæstiréttur fellt dóm sem segir að íslenska ríkinu beri ekki skylda til að borga þrotabúunum út í öðru en íslenskum krónum. Þess vegna er þessi ráðstöfun á sínum tíma alveg óskiljanleg, sérstaklega þegar það eina sem raunverulega vantar í ríkisreksturinn af alvöru er erlendur gjaldeyrir.
Það hefur komið fram um málefni Landsbankans að það er verið að reyna að endursemja um það lán en það er með ríkisábyrgð eins og allir vita og Landsbankinn er í eigu ríkisins.
Virðulegi forseti. Í Stefnu og horfum, fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014, eru taldar upp ýmsar mjög jákvæðar aðgerðir sem farið verður í á kjörtímabilinu. Það er forgangsmál í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta þjónustu. Ég er í hagræðingarhópnum sem ríkisstjórnin setti á fót og í honum sitja ásamt mér hv. þm. Ásmundur Einar Daðason, sem er formaður hópsins, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson og hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir. Á bls. 86 er umfjöllun um það hvað þessi hópur á að gera. Þar stendur að vinna hópsins beinist einkum að því að taka á margháttuðum kerfisvanda eða -óhagræði og stuðla að öflugri og nútímalegri ríkisrekstri. Undirbúningur að viðamiklum kerfisbreytingum er þegar hafinn í mörgum ráðuneytum og munu þær beinast að helstu þjónustu- og stjórnsýslukerfum ríkisins.
Hér er verið að boða að ríkisstjórnin hafi nú þegar tekið af skarið um að sameina 40–50 ríkisstofnanir og hér er tekið á ýmsum áherslumálum ríkisstjórnarinnar eins og að nám í framhaldsskólum verði stytt. Hér er talað um fækkun háskóla, einföldun ríkiskerfisins, að lögregluembættum verði fækkað o.s.frv. þannig að það er af mörgu að taka.
Virðulegi forseti. Hagræðingartillögurnar eru nánast tilbúnar og ég trúi ekki öðru en að þær eigi eftir að koma til umræðu í 2. umr. og í fjárlaganefnd þegar hún hefur fengið frumvarpið formlega í hendurnar. Ég ítreka að þetta er ekki endanlegt plagg. Það á örugglega eftir að taka þó nokkrum breytingum og óska ég eftir góðu samstarfi við þingmenn alla, ekki síst þingmenn í fjárlaganefnd, við gerð og vinnslu fjárlaga fyrir árið 2014.