fjárlög 2014.
Hæstv. forseti. Ég treysti á að hæstv. ráðherra vinni með okkur í að skoða betur þetta með veiðigjaldið. Hann nefnir það réttilega að þetta er farið í umfjöllun hjá viðkomandi ráðuneyti. Ég treysti því að þetta mál verði skoðað þar og vek sérstaklega athygli á því, af því að ég hef tækifæri til þess, að í samninganefndinni sem oft er vitnað til, m.a. í stjórnarsáttmálanum, varðandi sjávarútveginn eru gríðarlega rík byggðasjónarmið. Þar er lögð mikil áhersla á það að sjávarútvegurinn skiptir landsbyggðina miklu máli og það þarf að gæta þeirra sjónarmiða í endurskoðun á lögunum eins og hefur verið reynt.
Af því að ég hef tækifæri hér til að ávarpa hæstv. ráðherra varðandi fjárlögin vil ég nefna að ég treysti á að hæstv. ráðherra standi við fyrirheit sem hafa verið gefin, bæði varðandi tækjakost á Landspítalanum og leiðréttingar á þeim niðurskurði sem er settur inn í heilbrigðismálin. Þarna eru alvarleg slys. Það sem gerist stundum við skipti á ráðherrum er að menn þekkja ekki það sem á undan er gengið nægilega vel og það er verið að skera niður á stað þar sem við erum nýbúin að gera samninga um að komið sé að lokum. Ég treysti á að það sé sameiginlegur skilningur ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar að það hafi verið komið nóg í heilbrigðismálum. Við byrjuðum að gefa til baka á þessu ári og heitum á ríkisstjórnina að standa við það að fara að byggja þar upp eins og fyrirheit eru gefin um, bæði í ræðu hæstv. forsætisráðherra og í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Þá held ég að 1, 2 eða 3 milljarðar til eða frá ef við erum að tala um lokauppgjörið á þessu öllu saman — auðvitað skiptir það máli en það skiptir meira máli að þessir hlutir verði í góðu lagi. Við vorum skömmuð fyrir það að hafa gengið langt í neyðarástandi en það eru ekki rök með því að nú sé hægt að gera meira. Ég trúi ekki að það sé einlægur vilji þingsins og treysti á að við getum gefið til baka. Ég heiti á hæstv. ráðherra að stýra því eða liðsinna okkur til þess að það verði gert.