fjárlög 2014.
Herra forseti. Samkvæmt forsetaúrskurði um verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins fer sá ráðherra í atvinnuvegaráðuneytinu sem fer með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál jafnframt með byggðamál. Ég mun því beina spurningum til hæstv. ráðherra sem annars vegar varða tilteknar stofnanir undir ráðuneytinu sem hann sem starfandi ráðherra fer með og hins vegar byggðamál almennt. Í fyrsta lagi er það Matvælastofnun. Hvar sér stað fjárveitingar til að hægt sé að standa sómasamlega að framkvæmd nýrrar löggjafar um dýravelferð? 9 millj. kr. frá umhverfisráðuneytinu duga skammt í þeim efnum. Það var metið svo að kostnaður við framkvæmd löggjafarinnar færi á annað hundrað milljónir og kostnaði verður létt af sveitarfélögunum um áramót sem nemur 40–50 millj., en ég sé ekki fjárveitinguna til Matvælastofnunar til að standa sómasamlega að þeirri framkvæmd.
Í öðru lagi: Hvað segir hæstv. ráðherra byggðamála um þá staðreynd að 50 milljónir eru skornar af Byggðastofnun sem hún fékk á síðasta ári til að hefja verkefnið Brothættar byggðir? Er það mat ríkisstjórnarinnar að þær séu engar eftir í landinu og allt í góðu lagi þannig að Byggðastofnun geti komist af án þeirra sérstöku fjármuna og hvað verður um þau verkefni sem hún er einmitt núna að hefja í tveimur sveitarfélögum til viðbótar?
Í þriðja lagi um Hafrannsóknastofnun sem á að taka á sig hagræðingu upp á 21,8 milljónir. Fjárhagur stofnunarinnar hefur verið þröngur undanfarin ár og henni hefur verið fleytt í gegnum erfiðleikana með miklum stuðningi úr verkefnasjóði sjávarútvegsins upp á um fimmta hundrað milljónir á ári. Ég hef grun um að sá sjóður sé ansi tómlegur orðinn. Hvernig sjá menn fyrir sér stöðu Hafrannsóknastofnunar á næsta ári í ljósi þessa viðbótarniðurskurðar?
Þetta voru spurningarnar þrjár um stofnanir undir ráðuneytinu.
Síðan hlýt ég að spyrja ráðherra byggðamála almennt: Hvað segir ráðherra byggðamála um að sóknaráætlanir landshlutanna eru skornar af upp á 400 millj. kr.? Er það í samræmi við fyrirheit í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar á sviði byggðamála? Hvað segir ráðherra byggðamála í öðru lagi um að 76 millj. kr. niðurskurður er á niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar á köldum svæðum? Í þriðja lagi: Hvað segir ráðherra byggðamála um að menningarsamningar eru skornir niður?
Varðandi flutningsjöfnunina þá skiljum við út af fyrir sig að fjárveiting liðins árs var notuð til að greiða út styrkina ári síðar en það var eitthvert undarlegt „ef“ í framsöguræðu ráðherrans þar sem hann sagði: Ef við kjósum að halda þessu áfram þá þarf fjárveitingu aftur á árinu 2015. Hvað þýðir þetta ef? Er eitthvert hik á ríkisstjórninni með að halda áfram jöfnun flutningskostnaðar?
Að lokum, og þessi listi gæti verið miklu lengri, hvað segir ráðherra byggðamála um jafn metnaðarfullt framtak ríkisstjórnarinnar og það að skerða dreifbýlisstyrki um 8,8 millj., jöfnun námskostnaðar til dreifbýlisfólks?