tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014.
Frú forseti. Orðið auðlegðarskattur er ágætt orð og það sérstaklega vegna þess að það er svo gagnsætt, það er svo tært, eins og gjarnan er nú talið til öndvegismerkja íslenskrar tungu, við erum dugleg við að gefa hlutunum nöfn sem eru lýsandi og tær og segja hvað í hlut á — og það gerir auðlegðarskatturinn. Hann er skattur á auðlegð, raunverulegan auð. Mér finnst það samt alls ekki skora hátt í samkeppni um fallegustu orð íslenskrar tungu. Ég nefni bara út úr kolli mínum hér orðið fjallamjólk. Af hverju er það ekki bara fallegasta orð íslenskrar tungu eða þess vegna orðið Þistilfjörður?
Varðandi það hvort auðlegðarskatturinn eins og hann er núna, í tveimur þrepum reyndar, sé hressilegur skattur, já, þetta er auðvitað talsverður skattur en hann er með há frítekjumörk. Á allan íslenskan mælikvarða eru það veruleg efni hjá fólki að eiga skuldlausa eign sem einstaklingur upp á 80 milljónir, eða 100 milljónir sem sambýlisfólk, (PHB: En lífeyrisréttur?) og menn borga ekki af þeim hluta auðs síns heldur aðeins af eigninni þar fyrir ofan. Fyrir velflesta sem eiga þá kannski eignir á bilinu 100–300 milljónir er skattprósentan lægri á heildareignina. Svo er hér ekki alveg sambærilegum hlutum saman að jafna.
Ég spyr Sjálfstæðisflokkinn á móti sem er orðinn svona ægilega beyglaður yfir þessu: Var ekki eignarskattur á Íslandi áratugum saman sem lagðist á eignir alveg niður í verulega lág mörk? (Gripið fram í.) Sjálfstæðisflokkurinn tuðaði mikið um þetta en hann lagði hann á áratugum saman, sat yfirleitt alltaf í ríkisstjórn og viðhélt eignarskatti sem hann var í orði kveðnu á móti. Það var eignarskattur. Þetta er stóreignarskattur, þetta er auðlegðarskattur. Þetta er sambærilegt við það sem Norðmenn kalla „formueskat“ og þá eiga menn formúur, er það ekki? Samkvæmt okkar málskilningi. Þetta er skattur á mikinn auð og hann er fullkomlega réttlætanlegur. Ég hef engar áhyggjur af því að hann standist ekki ákvæði stjórnarskrárinnar. (Forseti hringir.) Það væri stórfurðulegt ef við uppi á Íslandi, með okkar sögu í þessum efnum, mættum ekki leggja á auðlegðarskatt sem er miklu mildari að þessu leyti en eignarskattarnir voru hér um áratugaskeið.