143. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2013.

tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014.

2. mál
[15:49]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég spurði tveggja spurninga. Ég spurði hv. þingmann um mörk skattlagningar og eignarnáms. Ég vænti þess að fá svar við henni en áskil mér hins vegar rétt til að tala um eignarskatta sem tíundin var alla tíð og þvældist hér í gegn allar götur til 1996 eða 1997 og var afnumin þegar vaxtatekjur voru skattlagðar.

Ég endurtek spurningu mína: Hver eru mörk skattlagningar og eignarnáms?