143. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2013.

tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014.

2. mál
[16:48]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir líflegt innlegg hér í umræðuna (ÖS: Hvatningarorð.)og hvatningarorð, já. Fyrst varðandi Seðlabankann. Það skiptir miklu að Seðlabankinn hafi trausta rekstrarstöðu. Því verður svo sannarlega ekki fórnað í mögulegum breytingum sem fylgja þessu skuldabréfi. Það er ekkert annað sem hangir á spýtunni en að það þykir ekki vera, eins og ég sé það, þörf fyrir háar vaxta- og verðbótagreiðslur til Seðlabankans í ljósi sterkrar eiginfjárstöðu hans og veikrar stöðu ríkissjóðs á sama tíma. Það er engu að síður gert ráð fyrir því að það komi um 2 milljarðar í arðgreiðslur frá Seðlabankanum á næsta ári.

Hv. þingmaður gerði röksemdina fyrir bankaskattinum að umtalsefni. Í sjálfu sér er ekki annað gert í frumvarpinu og greinargerð með því en að vísa í þau rök sem er að finna í lögunum sjálfum. Í lögunum um bankaskattinn koma fram þau rök sem hér hafa verið tiltekin, nefnilega að skattinum sé ætlað að bæta ríkissjóði að nokkru það áfall sem hann hefur orðið fyrir vegna falls bankanna. Þrotabúin, þ.e. fjármálafyrirtæki í slitameðferð, hafa fram til þessa verið sérstaklega undanskilin.

Það má kannski gagnálykta og spyrja sig: Er það svo að ef ekki hefði verið til að dreifa þessu sérstaka undanþáguákvæði í lögunum, hefðu fjármálafyrirtæki í slitameðferð þá greitt skattinn fram til þessa? Það virðist að minnsta kosti vera mjög stutt í þá hugsun hjá þeim sem setur inn slíkt ákvæði í lögin í upphafi.

Varðandi skattlagningu á hinum ýmsu tekjuhópum er ekki hægt að taka þessa umræðu án þess að hafa í huga að áður en síðustu breytingar voru gerðar var almenna skattprósentan 23,5%.