störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er ekki nýtt að Sjálfstæðisflokkurinn svíki kosningaloforð sín. Hitt er kannski nokkuð langt gengið að hann efni ekki þær yfirlýsingar sem hann gefur líka eftir kosningar. Þannig kom fram í umræðunni í gær hjá hæstv. fjármálaráðherra að þær yfirlýsingar sem hann gaf 6. júní síðastliðinn, um að jafnvel inn á sumarþingið mætti vænta frumvarps til að efna kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um lækkun virðisaukaskatts á barnaföt — það bólar ekkert á því og ekki von á því hingað inn á næstunni. En látum það nú kannski vera þó það geti dregist fram eftir kjörtímabili að stjórnmálaflokkur geti efnt öll kosningaloforð sín.
Hitt er alger nýlunda í svikum á kosningaloforðum að Sjálfstæðisflokkurinn gengur þvert gegn kosningaloforðum sínum með því að hækka í tveimur atriðum skatta sem hann hefur lofað að lækka. Hann hefur hér í fjögur ár skammað okkur blóðugum skömmum fyrir að hækka bensín- og olíugjöld, ekki síst þingmenn Sjálfstæðisflokksins á landsbyggðinni. Og hvað gerir hann þegar hann kemst til valda? (Gripið fram í: Hækkar þau.) — Hann lækkar þau ekki, nei, látum það vera þó þeir hefðu ekki efni á því. Nei, hann hækkar skatta á bensín og olíu. Hann gengur þvert gegn eigin kosningaloforðum rétt 100 dögum eftir að hann hefur komist í ríkisstjórn.
Hvernig fer um efndir flokksins í því að afnema stimpilgjöld af viðskiptum með íbúðarhúsnæði? Það fengum við líka að sjá hér í gær. Látum vera þó að ríkissjóður hefði ekki efni á því að afnema þau strax, látum það vera þó það dragist eitthvað fram eftir kjörtímabilinu. En, virðulegur forseti, hér kom fram við umræðuna í gær að hæstv. fjármálaráðherra ætlar að hækka stimpilgjöld á unga fólkið sem er að kaupa íbúðarhúsnæði í fyrsta sinn. Stjórnmálaflokkur, sem hefur lofað að lækka stimpilgjöld, kemur inn með mál nr. 2 á þetta þing sem felst í því að hækka stimpilgjöld á fólk sem er að kaupa húsnæði í fyrsta sinn. Því tek ég þetta upp hér að Bjarni Benediktsson var einn nægilegur maður til að standa fyrir þessum málum hér í gær. (Forseti hringir.) Hvorki þingmenn Framsóknarflokksins né Sjálfstæðisflokksins treystu sér til að verja þetta (Forseti hringir.) að nokkru gagni.
Ég spyr þá þingmenn (Forseti hringir.) stjórnarflokkanna sem hér eiga eftir að koma í pontu: (Forseti hringir.) Hvernig efndir eru þetta á kosningaloforðum?