mótun stefnu í gjaldmiðilsmálum.
Virðulegur forseti. Ég deili þessu viðhorfi með hv. þingmanni til hugmyndarinnar um einhliða upptöku jafnvel þótt hún sé á einhvern hátt tvíhliða á öðrum gjaldmiðli. Mér hefur lengi fundist undarlegt að þeir sem eru á móti aðild að Evrópusambandinu á grunni fullveldisraka, sjálfstæðisraka, séu á sama tíma ginnkeyptir fyrir einhliða upptöku á ekki bara gjaldmiðli annars ríkis heldur í raun og veru efnahagsstefnu annars ríkis og því að vera algjörlega undirseldir þeirri stefnu án áhrifa. Það hefur mér alltaf fundist mjög undarlegt.
Þingsályktunartillagan sem við leggjum fram hér endurspeglar auðvitað trú okkar á hinum nýju hófstilltu stjórnmálum. Við förum einfaldlega fram á að allir reyni eftir fremsta megni að rökstyðja skoðun sína í gjaldmiðilsmálum með markmið í huga sem við hljótum að vera öll sammála um að við viljum ná, eins og frjáls viðskipti, stöðugleiki, traust á efnahagslífinu, betri lífskjör, lægra verðlag, lægri vextir og þannig fram eftir götunum.
Veruleikinn er auðvitað sá að líklega er meiri hluti fyrir því hér á þingi að notast við krónu. Það er stefna ríkisstjórnarinnar. Þá yrði það í öllu falli gott mál ef þessi þingsályktunartillaga leiddi til þess að ríkisstjórnin rökstyddi þá stefnu sína með tilliti til þeirra markmiða sem ég hef nefnt. Það yrði í öllu falli til þess að auka traust á íslensku efnahagslífi að fólk hafi það að minnsta kosti á tilfinningunni að ríkisstjórnin viti hvert hún stefnir og við vitum hvað hún hefur í huga með þeirri skoðun sinni að hér eigi að vera króna til framtíðar.