143. löggjafarþing — 7. fundur, 10. okt. 2013.
starfsmannastefna Landspítalans.
Hæstv. forseti. Nú er launakostnaður einn hæsti liður í útgjöldum hverrar stofnunar. Auðvitað skipta laun gríðarlega miklu máli en möguleikar á þróun í starfi, aðbúnaður og nauðsynleg tæki og tól til þess að menn geti sinnt vinnu sinni af alúð og samviskusemi skipta hvern starfsmann máli.
Mig langar því að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort í vændum sé ný starfsmannastefna með nýjum forstjóra Landspítala.