143. löggjafarþing — 8. fundur,  14. okt. 2013.

réttur til húsaleigubóta.

[15:16]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Þetta er eitt af því sem skiptir þessa nemendur og foreldra þeirra mjög miklu máli og það er spurning hvort hægt er að lagfæra þennan lið án þess að taka lögin öll til heildarendurskoðunar. Ég bendi til dæmis á að nemandi í Grímsey sem stundar nám í Menntaskólanum á Akureyri eða Verkmenntaskólanum á Akureyri er innan sama sveitarfélags en hann fær þó ekki stuðning af þessu tagi. Ekki skýst hann heim, en nemandi frá Svalbarðseyri sem er í öðru sveitarfélagi og á styttra heim, fær þessa greiðslu.

Ég held að við hljótum öll að vera sammála um að ekki hafi verið ætlunin að skilja eftir fámennan hóp dreifbýlisbarna þegar kemur að réttinum til húsaleigubóta. Ég skora á hæstv. ráðherra að bregðast við og kippa þessum lið í lag vegna þess að þetta skiptir máli núna, eins og vissulega svo margt annað. En ég held ekki að þetta sé flókin aðgerð, við þurfum ekki að bíða eftir öllum heildarlögunum.

Ég spyr því ráðherra aftur (Forseti hringir.) hvort hann sé tilbúinn að gera það.