143. löggjafarþing — 8. fundur,  14. okt. 2013.

bætt lífskjör.

[15:20]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Ég tek undir með þeim tveimur sem hv. þingmaður nefndi, höfundum greinar í Fréttablaðinu í síðustu viku, um það að við þurfum að leggjast saman á árarnar. Við þurfum að einbeita okkur að því að gera umhverfið hér á landi, hvort sem það er efnahagsumhverfið eða umhverfi atvinnulífsins, sem best úr garði til þess að við getum tryggt það að lífskjör og lífsgæði á Íslandi batni. Hvort það verði fengið með sameiginlegri úttekt þessara aðila og ríkisstjórnarinnar á áhrifum vegna aðildar eða ekki aðildar að Evrópusambandinu er ég ekki svo viss um. Ég held að það sé mun mikilvægara að við leggjumst öll á árarnar við að greina það sem betur mætti fara og fara í að lagfæra það.

Ég hef á undanförnum dögum og vikum átt fjölmarga fundi með hinum svokölluðu aðilum vinnumarkaðarins. Ég sótti smáþing sem Samtök atvinnulífsins héldu í síðustu viku og ég varði morgninum í morgun með stjórn Samtaka iðnaðarins þar sem fjallað var um atvinnuumhverfið og efnahagsumhverfið í breiðum skilningi. Þar finn ég fyrir miklum vilja til samstarfs, þar finn ég fyrir miklum vilja til þess að menn leggist á árarnar og komi að þeim markmiðum sem felast í því að tryggja hér stöðugt rekstrarumhverfi, að koma atvinnulífinu í góðan gang og að við hættum að einblína á það sem sundrar og horfum frekar á það sem sameinar okkur.