143. löggjafarþing — 8. fundur,  14. okt. 2013.

lagaumhverfi náttúruverndar.

[15:53]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það var mjög ábyrgt af hæstv. ráðherra að leggja það til við þingið að ganga í þetta mál eins og hann er búinn að leggja upp með. Þegar við hlustum á hv. stjórnarandstæðinga tala um málið þá kristallast ástæðan fyrir þeirri miklu andstöðu sem er við það. Hér koma menn og segja alveg hreint og klárt hvernig þetta er; það var algjör sátt um þetta, búið var að vinna þetta með hvítbók, hún var óumdeild og við bara gerum þetta hérna út frá kórréttum faglegum forsendum, en svo kemur eitthvert vont fólk og vill ekki fara í þetta.

Virðulegi forseti. Það er akkúrat þessi tónn sem það fólk sem nýtir náttúruna á Íslandi, sem ferðast um náttúruna, ferðast um hálendið — ég fullyrði, af því að ég er einn af því fólki og ég hef verið á fundum þar sem fólk sem aldrei fer á pólitíska fundi er ekki í því að taka umræðuna með þessum hætti. Það sagði: Hingað og ekki lengra. Fólk var hér með risafundi fyrir síðustu kosningar og allan síðasta vetur, sendi hingað tölvupóst og fylgdist með þingumræðum vegna þess að það var algjörlega búið að fá nóg af nákvæmlega þessu viðhorfi.

Það er nefnilega þannig, virðulegi forseti, að það fólk sem ferðast mikið veit þokkalega mikið um landið og það ferðast um landið af því að það er náttúruunnendur. Og jafn vel og hv. þingmenn telja sig vita allt og skilja allt og séu algjörlega með þetta þá er það nú ekki sjálfgefið að svo sé, sérstaklega þegar hv. þingmenn hafa ekki ferðast um landið, fólk er jafnvel sett í nefndir, t.d. í samgöngunefnd, sem hefur aldrei farið um hálendið. Ég hvet nú menn til að skoða þetta mál og ræða það eins og það er.

Í ofanálag kostar frumvarpið, ef það verður að lögum, 105 milljónir á ári. Ég er með smáfréttir, virðulegi forseti, við eigum ekki fyrir því. Síðasta ríkisstjórn sagði: Við skiljum hér við fjárlögin hallalaus. Því miður var það eins rangt og það getur orðið, (Forseti hringir.) 30 milljarðar, við eigum ekki þessa peninga, virðulegi forseti.