143. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2013.

störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Elín Hirst (S):

Virðulegi forseti. Við Íslendingar fögnum um þessar mundir 350 ára afmæli Árna Magnússonar handritasafnara með meiru. Ef ekki hefði verið fyrir ótrúlegan dugnað og eftirfylgni Árna ættum við Íslendingar aðeins brot af þeim handritum sem við eigum í dag.

Í síðustu viku var haldin glæsileg alþjóðleg ráðstefna í Norræna húsinu á vegum Árnastofnunar í tilefni afmælisins sem um 200 manns sóttu, þar á meðal fjöldi erlendra fræðimanna. Á sama tíma er hvergi hægt að skoða handritin, þessa mestu dýrgripi íslensku þjóðarinnar og þó víðar væri leitað. Árið 2002 var sett upp handritasýning í Þjóðmenningarhúsinu sem hefur verið opin allar götur síðan en var lokað 1. september síðastliðinn. Á sínum tíma var það skilyrði fyrir því að Árnastofnun gæti sett upp handritasýningu í Þjóðmenningarhúsinu að gæsla yrði þar allan sólarhringinn. Var því sérstök aukafjárveiting gefin Þjóðmenningarhúsinu svo hægt yrði að ráða næturvörð vegna handritasýningarinnar. Síðan er Árnastofnun tilkynnt að ekki sé gert ráð fyrir öryggisgæslu frá og með 1. september í Þjóðmenningarhúsinu einmitt núna í haust þegar við fögnum afmæli Árna Magnússonar. Þar með er stofnuninni nauðugur einn kostur að flytja handritin af sýningunni og loka henni.

Ekki verður séð að hér á landi séu til sýningargripir sem er brýnna fyrir almenning eða ferðamenn að hafa greiðan aðgang að en handritin. Þá vil ég taka fram í því sambandi, af því að hv. þm. Helgi Hjörvar gerði hér fjármál ríkisins að umtalsefni, sem ég vil svara honum um síðar, að ég er sammála því að fresta því að byggja Hús íslenskra fræða, bara svo að það sé á hreinu. En við höfum ekki efni á því að loka handritin okkar inni. Það væri svipað og ef Grikkir ákvæðu að breiða yfir Akropólis og Egyptar lokuðu leiðinni að píramídunum miklu.