143. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2013.

fríverslunarsamningur Íslands og Kína.

73. mál
[15:06]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ef ég skil hv. þingmann rétt leggur hann til að við förum í ákveðna útrás til Asíu í gegnum EFTA-samninginn, í gegnum það ferli. Er það rétt skilið hjá mér? Ef svo er, af hverju höfum við þá ekki lagt áherslu á að fara í þessa samningagerð við kínverska alþýðulýðveldið á sama grunni, í gegnum EFTA? Væri það í raun ekki betra form fyrir okkur? Við erum bara 320 þús. manna þjóð og eigum lítið í svona stórveldi ein á báti.

Mig langaði jafnframt að spyrja hv. þm. Össur Skarphéðinsson að því hvort hann hefði kynnt sér þær hremmingar sem þeir sem voru að fara að stofna heilsuþorp á Flúðum urðu fyrir í samskiptum við kínverskt fyrirtæki og hvaða kröfur voru settar þar fram. Ef ekki mun ég fara yfir það í næsta andsvari til þess að upplýsa þingmanninn ef hann er ekki meðvitaður um það.