störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ísland er á sigurbraut. Mögnuð frammistaða karlaliðsins í knattspyrnu í Noregi í gærkvöldi vekur athygli mína og landsmanna og við höfum undir stjórn Lars Lagerbäcks og Heimis Hallgrímssonar náð ótrúlegum árangri sem er vonandi rétt að byrja.
Ég vil vekja athygli á því að ef við náum þeim frábæra árangri að komast í úrslit heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu á næsta sumri verðum við minnsta ríkið til að verða þess heiðurs aðnjótandi í veröldinni. Það er aðeins Trínidad og Tóbagó sem er fámennasta þjóðin, telur 1,3 milljónir manna, sem þar hefur keppt. Ég held að slík auglýsing yrði nánast á við annað Eyjafjallagos.
Það eru líka fleiri íþróttamenn sem standa sig vel. Öll íslensku liðin í Evrópukeppni í knattspyrnu í sumar komust í aðra umferð. Það hefur ekki gerst áður. Uppbyggingarstarf KSÍ er að skila sér og það er ekki til betri forvörn en íþróttirnar og glæsilegt að sjá hvaða árangri okkar fólk er að ná á öllum sviðum. Aníta Hinriksdóttir var kjörin vonarstjarna Evrópu hér á dögunum. Það er glæsilegur árangur hjá ungri konu sem er að hlaupa sín fyrstu skref á alþjóðlegum keppnismótum.
Það þarf ekki að tala um handknattleikinn, hvernig hann stendur. Við eigum þjálfara í bestu deildum Evrópu, Alfreð Gíslason, Guðmundur Þór Guðmundsson, Dagur Sigurðsson og Þórir Hergeirsson eru þjálfarar í fremstu röð í heiminum. Ég hvet okkur til að standa vörð um íþróttir sem forvörn og styrkja æskuna með því. Ég hvet einnig fyrirtæki í landinu til að styðja við íþróttir. Ég held að það sé mjög mikilvægt um leið og við þingmenn hugsum til íþróttanna sem góðrar forvarnar og til þess að styrkja og efla okkar yngsta og besta íþróttafólk.