143. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2013.

störf þingsins.

[15:36]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Það var ráðrúm í sumar fyrir ríkisstjórnina og stjórnarflokkana að útfæra sérstakt veiðigjald þannig að það mundi afla meiri tekna en það gerir. Það var ráðrúm til þess að útfæra náttúrupassa. Það var ráðrúm til þess að láta hækkun á virðisaukaskatti halda sér. Það er enn ráðrúm til þess að draga til baka fyrirhugaða lækkun á tekjuskatti og fá þannig 3–5 milljarða sem ég veit að margir stjórnarliðar eru sammála um að þurfi inn í Landspítalann. Það er ráðrúm til að sækja tekjur til að mæta þeirri miklu fjárþörf sem er víða í opinberum rekstri í dag.

Spurningin er: Er vilji til þess hjá ríkisstjórninni?

Menn þurfa ekki að hafa verið lengi áhugamenn eða þátttakendur í íslenskri pólitík til að átta sig á því að það geisar kalt stríð á milli stjórnarflokkanna um þessar mundir. Menn horfa á það að forsætisráðherra talar um fjárlagafrumvarpið á fundum hér á landi, úti í kjördæmum, þannig að ekki endilega sé víst að þetta muni allt ganga eftir, umdeildir þættir eigi eftir að fara í gegnum kvörn þingsins o.s.frv. Honum er svarað af hæstv. fjármálaráðherra í viðtali við fjölmiðla úti með þeim hætti að það sé ekki víst að tillögur um skuldaniðurfellingar líti dagsins ljós á þessu ári o.s.frv.

Þó að maður geti auðvitað fagnað því að það sé afslappað andrúmsloft í stjórnarmeirihlutanum og menn séu ekki neitt sérstaklega agaðir, það er ágætt út af fyrir sig, skortir mjög á að það séu skýrar línur og skýr svör um það hvert stefnt sé. Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun fengum við enn staðfest frá Seðlabanka Íslands að þeir sem skulda mest eru með há laun og eru í minnstum greiðsluvanda. Nú þarf því ríkisstjórnin að fara að líta aðeins ofan í stjórnarsáttmálann og ákveða á hvaða leið hún er og hvort hún sé samstiga í þeim leiðangri.