143. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2013.

meðferð sakamála.

90. mál
[15:38]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála. Í frumvarpinu er lagt til að frestað verði fram til 1. janúar 2015 að setja á fót embætti héraðssaksóknara. Forsaga málsins er sú, eins og þingheimi er kunnugt, að 1. janúar 2009 tóku gildi ný lög um meðferð sakamála, lög nr. 88/2008, er leystu af hólmi lög um meðferð opinberra mála frá 1991.

Í lögunum er meðal annars mælt fyrir um að sett skuli á fót embætti héraðssaksóknara sem þá yrði nýtt stjórnsýslustig innan ákæruvaldsins. Vegna sparnaðaraðgerða á útgjöldum ríkisins fyrir árið 2009 var því verkefni frestað fram til 1. janúar 2010 og þannig var því frestað að setja embættið á fót. Vegna áframhaldandi sparnaðaraðgerða var því svo aftur frestað að setja embættið á fót fram til 1. janúar 2014.

Í innanríkisráðuneytinu er nú unnið að heildaráætlun fyrir réttarvörslukerfið, þar á meðal um skipan ákæruvaldsins. Það er því nauðsynlegt að fresta gildistöku ákvæða laganna er varða embætti héraðssaksóknara um skeið, þar til fyrir liggur niðurstaða í vinnu ráðuneytisins um fyrirkomulag ákæruvaldsins til frambúðar. Er því lagt til hér að ákvæðum laganna er fjalla um embætti héraðssaksóknara verði frestað fram til 1. janúar 2015.

Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umr.