skiptileigusamningar fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum o.fl.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um skiptileigusamninga fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum og o.fl. Frumvarp þetta var lagt fram á 141. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Það er því lagt hér fram öðru sinni með nokkrum breytingum sem voru gerðar við þinglega meðferð málsins þar sem komið er til móts við þær athugasemdir sem þar voru gerðar.
Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun neytendaverndar á sviði skiptileigusamninga. Frumvarpið byggir á tilskipun Evrópuþingsins og Evrópuráðsins nr. 2008/122, um neytendavernd að því er varðar tiltekna þætti skiptileigusamninga, samninga um orlofskosti til lengri tíma, endursölu og skiptasamninga. Tilskipunin leysti af hólmi eldri tilskipun um sama efni sem innleidd var hér á landi með lögum nr. 23/1997, um gerð samninga um hlutdeild í afnotarétti orlofshúsnæðis.
Til nánari skýringar má taka dæmi af einstaklingi sem ætlar að kaupa skiptileigu og snýr sér að seljanda. Áður en viðkomandi einstaklingur verður bundinn samningi eða tilboði verður seljandi að veita honum skýrar og auðskiljanlegar upplýsingar um ákveðin atriði eins og gildistíma samnings, lýsingu á fasteign, verð, hvaða þjónusta fellur undir o.s.frv. Tilgangurinn með slíkri upplýsingagjöf er að neytandi geti tekið upplýsta ákvörðun um hvort af samningi verður eða ekki. Ef viðkomandi einstaklingur ákveður að ganga til samninga skal seljandi gera samning á ákveðnu formi og skulu ákveðnar upplýsingar koma fram í samningnum, m.a. þær sem að framan eru greindar. Sami einstaklingur hefur í kjölfarið 14 daga til að falla frá samningnum og meðan sá frestur er að líða er seljanda óheimilt að krefjast fyrirframgreiðslu, sama hvaða formi hún tekur.
Þá skulu allar greiðslur samkvæmt samningi fara fram í samræmi við greiðsluáætlun um fastar og jafnar árlegar afborganir af samningi. Frá gildistöku eldri tilskipunar hefur orðið mikil breyting á markaði fyrir skiptileigusamninga í Evrópu. Ný afbrigði slíkra samninga litu dagsins ljós sem féllu utan gildissviðs hinnar eldri tilskipunar. Margar þessara nýju tegunda samninga voru gerðar í þeim eina tilgangi að sniðganga gildandi reglur og hefur þetta valdið ýmsum vandamálum fyrir neytendur.
Tilgangur nýrra laga er þannig að veita neytendum betri vernd og styrkja jafnframt stöðu þeirra seljenda sem hafa sætt því sem kalla mætti ósanngjarna samkeppni frá aðilum sem ekki hafa hlítt gildandi reglum. Sem fyrr segir var eldri tilskipunin tekin til endurskoðunar og afrakstur þeirrar vinnu var sú tilskipun sem lagt er til að verði innleidd hér á landi með frumvarpi þessu.
Helstu nýmæli frumvarpsins eru að auki rýmra gildissvið er undir þau falla auk skiptileigusamninga, samninga um orlofskosti til lengri tíma og endursölusamninga. Einnig falla undir það skiptileigusamningar sem gilda lengur en í eitt ár, en í gildandi lögum er miðað við þrjú ár.
Að öðru leyti vísa ég til athugasemda með frumvarpinu um þær breytingar sem lagðar eru til. Með vinnslu á frumvarpinu var helst litið til löggjafar annarra Norðurlandaþjóða, enda rík hefð fyrir góðu og öflugu norrænu samstarfi á sviði neytendaverndar. Það er einnig til þess fallið að efla norræna réttareiningu á sviði neytendaverndar.
Hæstv. forseti. Ég hef nú rakið helstu atriði frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allsherjar- og menntamálanefndar.