þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.
Herra forseti og ágætu fulltrúar. Ég ætla líka að þakka fyrir þessi frumvörp, þetta eru ágætismál sem ég ætla ekki að gera lítið úr. Mér finnst þetta frumvarp um fánatímann sérlega gott þar sem ég er með fánastöng og gleymi oft að taka niður fánann á kvöldin. Þetta gefur okkur trössunum sem sagt færi á yfir bjartasta tíma ársins að hafa hann uppi til miðnættis. Ég held að það gleymi því voða margir á fallegum sumarkvöldum að taka niður fánann. Það er því ekki bara Íþrótta- og Ólympíusambandið sem fagnar þessu heldur líka fólk úti í bæ eins og ég.
Vegna umræðunnar fyrr í dag um skuldavanda heimilanna — þar sem mikið var kallað eftir framsóknarmönnum í ræðupúlt og þeir komu ekki en svo hafa þrír þingmenn þeirra rætt um þessi fánamál — vildi ég bara halda því til haga að þannig væri það, þannig eru áherslurnar svo að maður fari í svolitla pólitík hvað það varðar því að ég saknaði ykkar í umræðunni um skuldavandann. En ég ætla ekki að gera lítið úr þessari umræðu um fánafrumvörpin.