143. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2013.

fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

[10:56]
Horfa

Björk Vilhelmsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hef smávægilegar áhyggjur af fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og langar þess vegna að spyrja hæstv. innanríkisráðherra að því hvenær jónsmessunefnd, sem er samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsleg samskipti, kemur næst saman. Jónsmessunefnd hefur aldrei komið saman á þessu ári en kom fimm sinnum saman í fyrra, en það hefur hún ekki gert á þessu ári þrátt fyrir skýr ákvæði í 128. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ástæðan fyrir því að ég hef áhyggjur af þessu er ekki bara skuldavandi ýmissa sveitarfélaga heldur fyrst og fremst hvernig vandi sveitarfélaganna vex í velferðarmálum þegar ríkið hefur á mörgum undanförnum árum — ég er ekki bara að tala um núna eftir nýja ríkisstjórn — verið að endurskilgreina og þrengja hlutverk sitt í ýmiss konar þjónustu við fólk, en verkefnin hverfa ekki heldur færast yfir á sveitarfélögin án þess að fjármagn fylgi.

Núna er staðan orðin sú að velferðarkostnaður sveitarfélaganna hefur vaxið mjög mikið og velferðarnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verulegar áhyggjur. Ég hef ýmis dæmi, t.d. börn með sérstakar þarfir. Nú er alltaf farið fram á það af stofnunum sem ríkið fjármagnar, eins og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, BUGL og Þroska- og hegðunarmiðstöð heilsugæslunnar, að frumgreining fari fyrst fram hjá þjónustumiðstöðvum og skólum sveitarfélaganna. Í barnaverndinni hefur Barnaverndarstofa verið endurskilgreind þannig að börn með fötlunargreiningar fá ekki inni í úrræðum þeirra. Eins og við vitum hefur Landspítali – háskólasjúkrahús verið að útskrifa veikara fólk sem heimaþjónusta sveitarfélaganna tekur við og kostnaður þeirra vex því mikið. Svo er vanmat í fjárþörf í málefnum fatlaðra mjög alvarlegt mál. (Forseti hringir.)

En hvenær á jónsmessunefnd að vera kölluð saman?