143. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2013.

sjúklingagjöld og forgangsröðun við tekjuöflun ríkissjóðs.

[14:32]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Auðvitað munar okkur hv. þm. Bjarna Benediktsson ekki mikið um 1.200 kr. á dag. Það eru heldur ekki hraustir menn á besta aldri sem unnvörpum eru lagðir inn á spítala landsins, (Gripið fram í: Víst.) heldur er það veikasta fólkið í samfélaginu sem þetta bitnar fyrst og fremst á. Ég átti ekki von á því að þessi umræða mundi snúast mikið um þessar 1.200 kr., leguskattinn sem Sjálfstæðisflokkurinn laumaði inn með fjárlagafrumvarpinu, því að ég treysti því satt að segja að Framsóknarflokkurinn muni gæta þess að inniliggjandi sjúklingar þurfi ekki að bera þann skatt og að þessi mistök verði leiðrétt á milli umræðna.

Ég ræddi almennt um forgangsröðun við tekjuöflun ríkissjóðs, vakti athygli á því að sjúklingaskattar hafa hækkað á Íslandi yfir langan tíma og í stjórnartíð allra flokka. Ég kenndi engum einum flokki sérstaklega um það. Þeir hafa hækkað um helming og það er orðið þannig að þegar við berum okkur saman við helstu samkeppnisþjóðir okkar, Danmörku, Svíþjóð og Noreg, eru tekjuskattar hér ekki hærri en þar. Neysluskattar á Íslandi eru heldur ekki hærri en þar. Sjúklingaskattar á Íslandi eru hins vegar orðnir verulega hærri en þeir eru í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Ef við ætlum að búa til lífsskilyrði hér sem eru samkeppnishæf við það sem gerist í Danmörku, Svíþjóð og Noregi eigum við þá ekki, ef færi gefst til þess að lækka skatta, að leggja áherslu á að lækka þá skatta sem hér eru hærri en þar og leggjast einmitt á þá sem veikir eru og höllum fæti standa, oft og tíðum í tekjuöflun líka? Eigum við ekki að lækka sjúklingaskatta fremur en auðlegðarskatta, skatta á útgerðarmenn eða tekjuskattinn á mig og hæstv. fjármálaráðherra, miðtekjuþrepið? Eigum við ekki heldur að lækka þá skatta (Forseti hringir.) sem sannarlega eru orðnir hærri hér en gerist í nágrannalöndunum, (Forseti hringir.) sjúklingaskattana?