143. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2013.

rannsókn á ákvörðunum stjórnvalda vegna innstæðna Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu.

40. mál
[15:17]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Til að taka af allan vafa um afstöðu mína til tillögunnar og til að svara fullkomlega lögmætri spurningu hv. þm. Elínar Hirst lýsi ég því yfir að ég er ekki á móti þessari tillögu. Ég ætla ekki að greiða atkvæði gegn henni ef hún kemur aftur til þingsins. Ég tel að það sé allt í lagi að skoða þetta, að allt sem þessu máli tengist þoli dagsljósið og meira en það.

Ég er að benda á hræsnina, yfirdrepsskapinn og skinhelgina í tillögunni. Mér finnst allt í lagi að menn skoði samskipti Breta og Hollendinga við Ísland á þessum tíma, og allra okkar stjórnmálamanna, en það kemur algjörlega skýrt fram í greinargerðinni að það er gert ráð fyrir því að það séu fyrst og fremst embættisgjörðir síðustu ríkisstjórnar sem á að skoða, ekkert annað. Það vill svo til að það var önnur ríkisstjórn sem kom að þessu máli og þá finnst mér rétt að hún sé skoðuð líka. Það er ekkert sem mér finnst hafa verið jafn slæmt í því máli og það sem gerðist í tíð þeirrar ríkisstjórnar. Ég sat í henni líka. Ég sat í henni sem iðnaðarráðherra og í um það bil hálft ár, næstum því hálft ár samtals var ég líka starfandi utanríkisráðherra í forföllum þáverandi utanríkisráðherra þannig að ég þekki málið ákaflega vel.

Ég segi það sannast sem ég veit að þrennt gerðist í tíð þeirrar ríkisstjórnar sem er óhjákvæmilegt að framsögumaður máls hljóti að minnsta kosti að drepa á. Það er algjörlega fáránlegt að það skuli ekki vera í greinargerð með tillögunni fyrst hann leggur hana fram á annað borð og það eru embættisgjörðir sem falla undir Sjálfstæðisflokkinn.

Það er í fyrsta lagi þegar ráðherra Sjálfstæðisflokksins skrifaði fyrir hönd Íslands, eða setti stafina sína, undir samkomulag við Hollendinga á fundi í Washington þar sem fallist var á vexti og Ísland í reynd bundið með stöfum ráðherra til að greiða tiltekna vexti sem voru margfalt hærri en þeir sem síðar urðu niðurstaðan í Icesave I, II og III, alveg sama hvaða samninga maður lítur á.

Síðan átti aftur að gera það nokkrum dögum síðar gagnvart Bretum. Þá vildi svo til að utanríkisráðherra, sem þá var starfandi, komst að því og bannaði sínum mönnum sem voru í þeirri nefnd að gera það. Það var hætt við það þegjandi og hljóðalaust.

Það þriðja sem þarf síðan að skoða er það þegar ráðherra Sjálfstæðisflokksins féllst á það á fundi úti í Brussel að málið yrði sett í gerðardóm sem átti að vinnast á tveimur sólarhringum og þar sem Ísland átti að hafa einn af fimm. Það gerði ráðherrann án þess að bera það undir ríkisstjórn eða aðra ráðherra og ekki starfandi utanríkisráðherra á þeim tíma. Þá var það starfandi utanríkisráðherra sem bannaði fulltrúa Íslands að fara á þann fund. Síðar leystist það mál af sjálfu sér vegna þess að Evrópusambandið komst að því eftir að hafa skoðað málið að það hefði ekki lagalegar heimildir til að fara í slíkan gerning.

Það var sjálfstæðismaður sem gerði þetta. Það olli stjórnarkreppu, leiddi til þess að ríkisstjórnin féll næstum því og það var barið á hurð þess fundar þar sem ríkisstjórnin var að falla, þar sem sátu fjórir ráðherrar, af embættismanni utanríkisráðuneytisins sem kynnti það að Evrópusambandið væri fallið frá þessu. Eigum við þá ekki að rannsaka þetta líka?

Með öðrum orðum er ég þeirrar skoðunar að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sé bara að uppfylla orð sjálfstæðismanna á sínum tíma þegar landsdómsmálið var uppi þar sem þeir sögðu það opið, m.a. í ræðustól, að ef farið yrði í þennan leiðangur, sem menn illu heilli fóru í, væri sjálfsagt að þá yrði hann endurtekinn. Það er verið að standa við hótanir Sjálfstæðisflokksins frá þeim tíma. Þetta er ekkert annað en hefndarleiðangur og það lýsir best tilgangi hv. þingmanns að hann kemur núna, þegar hann sér í hvers konar óefni hann er búinn að setja sinn eigin flokk, og biður um málefnalega rökræðu þegar hann nefnir sjálfur í sinni framsögu sérstaklega hv. þm. Steingrím J. Sigfússon. Það er öllum ljóst af máli hv. þingmanns að hann er fyrst og fremst á eftir honum.

Þetta er ljótur leikur og ég segi það bara hér hreint út. Enginn af fyrrverandi ráðherrum ríkisstjórnarinnar getur sagt þetta nema ég vegna þess að ég sagði frá upphafi að sú ganga sem menn fóru í með landsdóm væri ill ganga. Og hafðu það, hv. þm. Guðlaugur Þór.