rannsókn á ákvörðunum stjórnvalda vegna innstæðna Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu.
Virðulegi forseti. Það er kannski tími til að skrúfa niður í gamalli kolavél.
Það er nú svo að þegar hinir svokölluðu Svavarssamningar voru undirritaðir í júní lýsti þáverandi hæstv. forsætisráðherra því yfir að þetta væru bestu mögulegu samningar sem hægt væri að ná. Þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, nú hv. þm. Össur Skarphéðinsson, hvatti menn til að halda veislu svo glæsilegir væru samningarnir og þáverandi hæstv. fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, talaði um stórkostlegan sigur.
Ég hygg að það sé í lagi að fara aðeins yfir sögu Icesave-málsins og spyr því hv. þm. Össur Skarphéðinsson hvort hann hafi yfir höfuð lesið þá tillögu sem hér er verið að fjalla um. (Gripið fram í.) Nei, ég held ekki að hv. þingmaður hafi gert það.
Það er alveg augljóst að hér er verið að leggja til að farið verði yfir Icesave-málið svokallaða, embættisfærslur og ákvarðanir íslenskra stjórnvalda, samskipti þeirra við bresk og hollensk stjórnvöld vegna innstæðna í útibúum Landsbanka Íslands. Hér er engin ríkisstjórn undanskilin. Hér er ekki ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undanskilin. Að vísu hef ég samúð með hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni sem er búinn að gleyma því að hann var í þeirri ríkisstjórn.