rannsókn á ákvörðunum stjórnvalda vegna innstæðna Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu.
Virðulegi forseti. Ég ætla að nota þetta tækifæri til að fara örlítið út fyrir þá þingsályktunartillögu sem liggur fyrir, vegna þess að ég tel að fara eigi fram rannsókn á öllum samskiptum. Um það erum við, ég og hv. þm. Össur Skarphéðinsson, greinilega sammála. Við skulum koma öllu upp á yfirborðið og vera ófeimnir við það og það er enginn hefndarleiðangur í því. Við viljum bara fá þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru og eðlilegt og sanngjarnt er að almenningur fái, ekki síst með tilliti til þess að mikill meiri hluti landsmanna sendi ríkisstjórnina í tvígang aftur heim til sín með gerða samninga. Við þurfum að vera óhrædd að ræða um það eins og margt annað.
Ég held að við þurfum einnig að velta því fyrir okkur hvernig staðið var endurreisn íslensku bankanna og hvernig tveir stærstu viðskiptabankarnir, Arion banki og Íslandsbanki, komust að mestu í eigu erlendra kröfuhafa. Það er því ekki bara Icesave-málið sem huga þarf að heldur ekki síst þetta. Það þarf líka að huga að Landsbankanum og nær 300 milljarða skuldabréfi sem gefið var út á ábyrgð okkar allra.
Ég vil vekja athygli þingheims á því að fyrir skömmu hélt Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði við Háskóla Íslands, erindi þar sem hann telur að gerð hafi verið alveg gríðarleg mistök á árinu 2009 og eftir það. Hann bendir á að samanlagður hagnaður viðskiptabankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka, hafi verið 250 milljarðar frá árinu 2009.
Hefði verið tekin ákvörðun um að halda eignarhlut ríkisins í þessum bönkum en ekki afhenda bankana til kröfuhafa, og þá er ég að tala um aðra en Landsbankann, hefði ríkissjóður farið langt með að ná upp í það gríðarlega tap sem varð hér þegar fjármálakerfið hrundi að stórum hluta. Þess í stað hefur hagnaðurinn fallið erlendum kröfuhöfum í skaut og þeir munu með einhverjum hætti á einhverjum tímapunkti flytja þennan hagnað úr landi, þannig að búið er að stækka og auka við snjóhengjuna og vanda okkar við að leysa gjaldeyrishöftin.
Þá er ljóst að ákvörðun fyrrverandi ríkisstjórnar um að afhenda kröfuhöfum Landsbankans 300 milljarða skuldabréf var ákvörðun sem við eigum eftir að greiða dýru verði og mun enn fresta því að við sjáum fram á að hér opnist fyrir eðlileg gjaldeyrisviðskipti. Snjóhengjan hélt áfram að vaxa vegna ákvarðana sem teknar voru af fyrrverandi ríkisstjórn. (Gripið fram í.) Ég hygg að fara þurfi í gegnum það hvernig það var gert, með hvaða hætti, hver tók ákvörðunina og af hverju hún var tekin. Það getur vel verið að það hafi verið eðlilegar skýringar á einhverju af því sem gert var og að rök hafi verið fyrir því, en ég vil þá fá að sjá þau rök og ég vil að fram komi hverjir tóku ákvarðanirnar, af hverju, hvað þær kostuðu okkur, hverju við fórnuðum og hvað við fengum í staðinn.
Þriðju mistökin sem Ásgeir Jónsson lektor nefnir eru að ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna skyldi hafa tekið þá ákvörðun að láta neyðarlögin ekki gilda um aðrar lána- eða fjármálastofnanir en þessa þrjá banka, þ.e. það gilti ekki um Íbúðalánasjóð og það gilti ekki um sparisjóðina. Milljarðatugir fóru í vonlausar tilraunir til að bjarga þessum stofnunum. Ég vil því að við förum í gegnum þetta og að upplýst verði með hvaða hætti það var gert. Við sjáum það kannski að einhverju leyti í sparisjóðaskýrslunni sem væntanleg er.
Ég ætla að fá að vitna, með leyfi forseta, í það sem haft er eftir Ásgeiri Jónssyni í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Þar segir hann:
„Síðustu ár hafa verið ár hinna breiðu baksýnisspegla og það er ávallt hægt að vera vitur eftir á. Allar þessar ákvarðanir áttu sér sínar ástæður og röksemdir, en samt sem áður hafa þær leitt íslenska efnahagslífið í stöðu sem nálgast það að vera ósjálfbær þegar litið er fram. Það versta er þó að setning gjaldeyrishafta hefur heft athafnafrelsi bæði fyrirtækja og einstaklinga og þannig komið í veg fyrir fjárfestingar, útflutning og nýja lífskjarasókn.“
Icesave-málið er auðvitað stórt en þessi mál eru alveg gríðarlega stór. Við horfum fram á það að samningsbundnar afborganir innlendra aðila, þ.e. annarra en ríkissjóðs og Seðlabanka, á erlendum lánum til ársins 2018 eru 385 milljörðum hærri en undirliggjandi viðskiptaafgangur, 385 milljörðum hærri, og þá eru ríkissjóður og Seðlabanki ekki þar inni. Staðan hefur versnað frá því að við athuguðum síðast.
Samkvæmt skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika síðastliðið vor átti þessi upphæð að vera um 120 milljörðum minni. Á nokkrum mánuðum stækkaði gatið um 120 milljarða, þannig að hér eru alveg gríðarlegir hagsmunir í húfi.
Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að hafa upplýsingar um hvernig menn komust að þessum ákvörðunum sem hafa leitt okkur í þá stöðu sem við erum í, af hverju menn gerðu það og hvaða rök lágu að baki, vegna þess að vissulega hafa menn haft rök fyrir því. Ég er ekki í einhverjum hefndarleiðangri gegn einum eða neinum, ég vil bara fá upplýsingarnar upp á borðið. Og ég hafna því þegar hv. þm. Össur Skarphéðinsson talar um að um hefndaraðgerðir eða hefndarleiðangur sé að ræða þegar þingmenn óska eftir að fá ákveðnar upplýsingar um hvernig stjórnvöld hafa staðið að samningum eða ákvörðunartökum í einstökum málum. Ég vil ekki taka þátt í slíkum leiðangri og ég fullyrði eftir bitra reynslu a.m.k. þingmanna Sjálfstæðisflokksins að enginn í þingliði Sjálfstæðisflokksins muni nokkurn tíma taka þátt í slíkum leiðangri.
Ég ítreka að það er ýmislegt sem við þurfum að læra af. Icesave-málið er eitt af því og þá skulum við ekki undanskilja eitt eða neitt. Við skulum byrja á upphafinu og kannski ættum við þá að byrja hjá Evrópusambandinu og hinu meingallaða regluverki þar og kanna hvaða áhrif það hafði. Síðan skulum við feta okkur fram á við. En við þurfum líka að færa okkur nær í tíma og tala um þær ákvarðanir sem teknar voru í tíð ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna, sem ég talaði um hér áðan.