40 stunda vinnuvika.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að koma hingað upp og mæla fyrir máli sem allir geta verið sammála um að er gott mál. Þetta er mál sem ég flutti á 141. löggjafarþingi. Þá gekk það til velferðarnefndar. Nefndinni bárust umsagnir frá ýmsum hagsmunaaðilum sem tóku almennt vel í þær tillögur sem frumvarpið hefur að geyma. Ég legg þetta frumvarp nú fram óbreytt ásamt með öllum þingflokki Bjartrar framtíðar.
Þetta mál hefur vakið athygli. Ég held að almennt ríki nokkur eftirvænting eftir því að það verði að veruleika. Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi frídaga á Íslandi. Áður hafa verið lagðar fram þingsályktunartillögur þar sem lagt hefur verið til að flytja það frí sem fólk hefur fengið á sumardaginn fyrsta og á uppstigningardag frá þeim fimmtudegi sem daginn ber upp á og yfir á föstudag eða mánudag þar á eftir. Þá hefur málið fengið nokkuð almenna umfjöllun, m.a. hefur Rafiðnaðarsamband Íslands beitt sér fyrir sambærilegri breytingu. Vilji þjóðarinnar hefur verið kannaður nokkrum sinnum á liðnum árum og oft hefur verið mikil fylgni við að breyta fyrirkomulaginu í samræmi við það sem lagt er til í frumvarpi þessu.
Með frumvarpinu er ekki verið að leggja til að helgi eða hefð viðkomandi daga sé færð, breytt eða rýrð heldur eingöngu að það frí sem þeim fylgir sé fært til hagræðis fyrir launþega, fjölskyldur þeirra og atvinnurekendur. Stakir frídagar eru á margan hátt óheppilegir á vinnustöðum, þeir skapa óhagræði og draga úr framleiðni. Á sama hátt nýtist stakur frídagur launþegum ekki nema að nokkru leyti með vinnudag á undan og á eftir. Það fyrirkomulag sem hér er lagt til ætti því að auka möguleika launþega á að nýta það frí sem þeir fá með lengri helgi. Það er fjölskylduvænna fyrirkomulag og er til hagræðis fyrir atvinnurekendur.
Í frumvarpinu er lagt til að veita skuli almenna frídaga vegna uppstigningardags og sumardagsins fyrsta næsta föstudag eftir þann dag sem þá ber upp á. Með því að færa fríið um einn dag skapast meiri tenging við upphaflega frídaginn og vísa mætti til uppstigningarhelgarinnar og fyrstu sumarhelgarinnar. Þar sem sumardaginn fyrsta ber stundum upp á sama dag og skírdag og föstudagurinn á eftir er þá föstudagurinn langi er kveðið á um að þegar svo sé skuli veita almennan frídag vegna hans daginn þar á undan. Með því lengist páskafrí og verður frá miðvikudegi. Þá er lagt til að 1. maí verði haldinn hátíðlegur fyrsta mánudag í maí og veitt almennt frí þann dag. Árið 1983 var frídagur verslunarmanna gerður að frídegi og ákveðið að hann yrði fyrsti mánudagur í ágúst. Síðan þá hefur sú helgi sem dagurinn lendir við verið kölluð verslunarmannahelgi og verið ein mesta ferðahelgi landsmanna. Með því að færa það frí sem tengist 1. maí fjölgar möguleikum fólks á að nýta verkafólkshelgina til frítöku eða fjölskyldustunda auk þess sem meiri möguleikar gefast á stærri og lengri viðburðum tengdum þessum alþjóðlega baráttudegi verkalýðsins.
Frumvarpinu er jafnframt ætlað að tryggja að þegar lögboðnu frídagana jóladag, annan í jólum, nýársdag og 17. júní ber upp á helgi séu veittir almennir frídagar í stað þeirra næsta virka dag á eftir. Beri bæði jóladag og annan í jólum upp á sömu helgi eru þá mánudagur og þriðjudagur þar á eftir frídagar. Lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 2014 og næsta ár verði þá hið fyrsta með þessu nýja fyrirkomulagi.