143. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2013.

stuðningur við sjálfsákvörðunarrétt íbúa Vestur-Sahara.

88. mál
[17:35]
Horfa

Flm. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stuðning við sjálfsákvörðunarrétt íbúa Vestur-Sahara. Meðflutningsmenn mínir á tillögunni eru hv. þingmenn Katrín Jakobsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Birgitta Jónsdóttir, Róbert Marshall, Helgi Hjörvar, Björk Vilhelmsdóttir og Höskuldur Þórhallsson.

Texti ályktunarinnar er stuttur. Þar segir einfaldlega, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að sjálfsákvörðunarréttur íbúa Vestur-Sahara verði virtur.“

Á bak við þessi fáu orð býr mikil saga sem rétt er að rekja hér í nokkrum orðum. Vestur-Sahara er strjálbýlt land á norðvesturströnd Afríku. Íbúarnir eru um hálf milljón talsins en stærð landsins er meira en tvöfalt flatarmál Íslands. Landið er ríkt af auðlindum, jafnt jarðefnum, svo sem fosfati sem og fiskimiðum, og talið er líklegt að olíu sé að finna úti fyrir ströndum þess.

Til ársins 1975 laut landið stjórn Spánverja og nefndist þá Spænska-Sahara. Íbúar landsins, Sahrawi-þjóðin, batt vonir við að öðlast sjálfstæði við brottför Spánverja. Þess í stað réðust nágrannaríkin inn í landið, Marokkó úr norðri og Máritanía úr suðri. Að lokum hernámu Marokkómenn landið og hafa farið þar með völd til þessa dags.

Yfirráð Marokkós hafa einkennst af rányrkju auðlinda og markvissri viðleitni til innlimunar svæðisins. Sahrawi-þjóðin býr nú ýmist innan landamæra Vestur-Sahara eða í flóttamannabúðum í Alsír. Vopnuð barátta var á milli Marokkóhers og Pólisaríó, sjálfstæðishreyfingar Vestur-Sahara, um margra ára skeið. Árið 1991 var hins vegar samið um vopnahlé sem haldið hefur til þessa dags með hjálp friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna.

Sameinuðu þjóðirnar hafa aldrei viðurkennt innlimun Marokkós á Vestur-Sahara og skilgreina Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðadómstóllinn landið, með leyfi forseta, sem „svæði sem ekki nýtur sjálfstjórnar“. Þess hefur margsinnis verið krafist að Marokkóstjórn viðurkenni sjálfsákvörðunarrétt íbúa Vestur-Sahara, þar með talið flóttamanna, og að landsmönnum verði sjálfum leyft að ákvarða framtíð sína. Áætlanir um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð svæðisins hafa verið kynntar af fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og fengið samþykki þeirra og Sahrawi-fólksins, en Marokkóstjórn hefur ætíð neitað samvinnu.

Alþjóðleg mannréttindasamtök hafa harðlega gagnrýnt framferði Marokkómanna í Vestur-Sahara, þar á meðal ofsóknir í garð andófsmanna. Á nýlegum stofnfundi vinafélags Vestur-Sahara á Íslandi sögðu erlendir sérfræðingar m.a. frá handtökum á andstæðingum hernámsins og svimandi fangelsisdómum fyrir litlar eða engar sakir þar sem almennir borgarar eru dæmdir af herdómstólum. Má þar nefna baráttumann sem nýverið var dæmdur í 35 ára fangelsi fyrir glæp sem var þó samkvæmt ákærunni ekki framinn fyrr en tveimur dögum eftir að maðurinn var handtekinn. Hann var sem sagt kominn í fangelsi þegar glæpurinn sem hann átti að hafa framið var framinn.

Tilraunir til að fá það samþykkt í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna að friðargæsluliðið í landinu fylgist líka með mannréttindabrotum hafa hins vegar alltaf strandað á neitunarvaldi Frakka. Hernámið hefur áhrif á líf allra íbúa landsins. Hver einasta fjölskylda er klofin þar sem sumir búa innan landamæra Vestur-Sahara en aðrir í flóttamannabúðum í Alsír, eins og fyrr segir. Ferðalög þarna á milli eru hins vegar útilokuð þótt ekki sé nema vegna 2.200 km öryggisgirðingar sem klýfur landið í tvennt. Girðingin sjálf er víst ekkert sérstaklega há eða burðug. Hún er hins vegar umlukin stærsta jarðsprengjubelti í heimi svo enginn hættir sér þar í gegn.

Rétt er að taka fram að ályktun þessi felur ekki í sér breytingu á afstöðu Íslands til Vestur-Sahara. Núverandi afstaða íslenskra stjórnvalda er sú sama og Sameinuðu þjóðanna; við viðurkennum ekki yfirráð Marokkós á Vestur-Sahara og viljum að íbúar landsins fái sjálfir að ráða framtíð sinni. Tilgangur þingsályktunartillögunnar er hins vegar sá að hvetja utanríkisráðherra til að hefja fyrir Íslands hönd virka baráttu fyrir því að sjálfsákvörðunarréttur fólksins verði virtur. Málefni Vestur-Sahara mundu þannig færast ofar á forgangslista utanríkisþjónustunnar. Ógæfa Sahrawi-þjóðarinnar felst nefnilega í því að hún er fámenn og afskekkt. Örlög Vestur-Sahara skipta stórveldi heimsins litlu máli auk þess sem einstök ríki og ríkjabandalög sjá sér hag í að halda góðum tengslum við stjórnvöld í Marokkó.

Í mínum huga liggur þó nokkuð beint við að Íslendingar láti sig málefni Vestur-Sahara varða. Þetta eru tvær fámennar þjóðir í strjálbýlum löndum við Atlantshaf. Ísland hefur lagt sig eftir því á vettvangi alþjóðamála að styðja við baráttuna fyrir sjálfsákvörðunarrétti smáþjóða. Má í því samhengi sérstaklega nefna stuðning við sjálfstæðisbaráttu Austur-Tímor, Eystrasaltsríkin og Palestínu. Með því að tala máli Sahrawi-fólksins á alþjóðavettvangi gætu íslensk stjórnvöld lagt mikilvægt lóð á vogarskálar friðar og lýðræðis í Norðvestur-Afríku.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umræðu og hv. utanríkismálanefndar.